Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2014: Thomas Pieters (8/27)
Nú verður fram haldið að kynna nýju strákana á Evróputúrnum 2014 þ.e. þá 27 sem fengu kortin sín á Evrópumótaröðina fyrir keppnistímabilið 2014 í gegnum lokaúrtökumót Q-school, sem fram fór á PGA Catalunya golfvellinum í Girona, Spáni.
Haldið verður áfram að kynna þá 5 stráka sem urðu í 17.-22. sæti og voru allir á samtals 10 undir pari, 418 höggum. Thomas Pieters frá Belgíu var einn þeirra, (lenti í 20. sæti með hringi upp á 64 73 72 68 68 73).
Thomas Pieters fæddist í Geel, Belgíu 27. janúar 1992 og er því 21 árs. Hann býr í Niijen í Belgíu og er þar í golfklúbb sem heitir BeGold/Top Golf Vlaanderen. Hann er meðal hávöxnustu kylfinga á túrnum 1,96 á hæð og 85 kg. Pieters byrjaði að spila golf 5 ára þar sem golf var fjölskyldusportið. Hann ferðaðist m.a. með fjölskyldunni til Suður-Afríku og spilaði þar, sem og í öðrum fjölskyldufríum.
Pieters var eini Belginn sem komst í gegnum Q-school og hlaut kortið sitt á Evrópumótaröðinni að þessu sinni og hann er 1 af aðeins 6 kylfingum sem komust í gegnum öll 3 stig úrtökumótsins. Hann er reyndar aðeins 2. Belginn sem spilar á Evrópumótaröðinni … hinn er Ryder Cup stjarnan Nicolas Colsaerts. Thomas Pieters komst inn á Evrópumótaröðina í 1. tilraun sinni.
Pieters gerðist atvinnumaður í ár, 2013, eftir langan og farsælan áhugamannsferil m.a. í bandaríska háskólagolfinu. Hann m.a. vann menn á borð við Jordan Spieth og Patrick Cantlay þegar hann sigraði í 1. deild bandaríska háskólagolfsins á 2. ári sínu í University of Illinois.
Meðal áhugamála Thomas Pieters utan golfsins eru snjóbrettaferðir. Frábær kylfingur hér á ferð sem gaman verður að fylgjast með.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024