Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 5. 2018 | 18:00

Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2018: Josh Geary (24/33)

Það voru 33 kylfingar sem tryggðu sér keppnisrétt á Evrópumótaröðinni í gegnum lokaúrtökumót Evrópumótaraðarinnar, sem fram fór dagana 11.-16. nóvember sl. á Lumine golfstaðnum á Spáni.

Það voru 25 efstu og þeir sem jafnir voru í 25. sætinu, sem tryggðu sér keppnisrétt.

Nú nýlega voru kynntir þeir sem deildu 12. sætinu á samtals 16 undir pari en það voru: Pep Angles og Gonzalo Fernandez-Castaño frá Spáni og Laurie Canter frá Englandi.

Í dag verður fram haldið að kynna þá 3 sem deildu 9. sætinu, en þeir léku allir á 17 undir pari; en þetta eru þeir Josh Geary, frá Ástralíu; Mark Foster frá Englandi og Connor Syme frá Skotlandi. Syme hefir þegar verið kynntur og í dag er það Josh Geary.

Josh Geary fæddist í Invercargill á Nýja Sjálandi 11. desember 1984 og er því 33 ára. Hann býr í Auckland á Nýja Sjálandi.

Geary er 1,75 á hæð og 77 kg.

Geary átti farsælan áhugamannsferil. Meðal liðakeppna sem hann tók þátt í sem áhugamaður voru Eisenhower Trophy árin 2004 og 2006 og Bonallack Trophy 2005. Rétt áður en Geary gerðist atvinnumaður í golfi, 2007, sigraði hann á the New Zealand Amateur.

Geary hefir átt reglulega alþjóðlegan feril og keppt á nánast öllum helstu karlgolfmótaröðunum: PGA Tour, Evróputúrnum, Asíutúrnum, Web.com Tour, PGA Tour Latinoamerica, PGA Tour Canada, Ástralasíu túrinn og Kína túrinn. Geary hefir m.a. sigrað 3 sinnum á Kína túrnum (China Tour)  og hefir einnig átt góðu gengi að fagna í Kanada og Nýja Sjálandi.

Hann vann kortið sitt á Evróputúrinn 2017 eftir að hafa orðið meðal efstu 25 á lokaúrtökumótinu.

Meðal áhugamála Geary þegar hann er ekki að keppa á golfvellinum eru fiskveiðar, ræktin og að fara á ströndina.

 

Geary er sem stendur nr. 1087 á heimslistanum.