Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 23. 2019 | 14:00

Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2019: Zander Lombard (26/27)

Golf 1 hefir á undanförnum árum kynnt „nýju strákana“ á Evróputúrnum og verður því fram haldið hér.

Lokaúrtökumótið í ár fór fram á Lumine golfstaðnum í Tarragona, nálægt Barcelona á Spáni, dagana 10.-15. nóvember 2018 og voru að venju spilaðir 6 hringir.

Efstu 25 og þeir sem jafnir voru í 25. sætinu hlutu kortið sitt á Evróputúrnum. Í ár voru það 27 sem hlutu kortið sitt á Evróputúrnum.

Líkt og á undanförnum árum verður hafist á að kynna þá sem urðu í síðustu sætunum fyrst og endað á þeim sem sigruðu í Q-school þ.e. urðu efstir í lokaúrtökumótinu.

Í ár deildu 8 strákar 20. sætinu og komust því 27 „nýir strákar“ á Evróputúrinn í ár gegnum lokaúrtökumótið. Einn þeirra sem ekki komst að þessu sinni, þrátt fyrir frábæra spilamennsku var Birgir Leifur „okkar“ Hafþórsson, GKG.

Þeir 8 sem deildu 20. sætinu, þ.e. urðu T-20 hafa nú allir verið kynntir en það eru: Kristian Krogh Johannessen, Filippo Bergamaschi, David Borda, Max Schmitt, Hugo León, Ben Evans, Kristoffer Reitan og Gavin Moynihan. Eins hefir sá verið kynntur sem einn hafnaði í 19. sæti en það var skoski kylfingurinn Marc Warren.

Sex kylfingar deildu 13. sætinu en það eru enski kylfingurinn Daníel Gavins, áströlsku kylfingarnir Deyen Lawson og Nick Cullen, Guido Migliozzi frá Ítalíu, Per Längfors frá Svíþjóð og Louis de Jager frá S-Afríku. Tveir deildu síðan 11. sætinu, báðir á samtals 19 undir pari þ.e Masahiro Kawamura frá Japan og Scott Gregory frá Englandi. Þeir hafa nú allir verið kynntir.

Sænski kylfingurinn Anton Karlsson og spænski kylfingurinn Ivan Cantero Gutierrez deildu 9. sætinu, en þeir léku hringina 6 á lokaúrtökumótinu á samtals 20 undir pari. Allir ofangreindu hafa verið kynntir.

Þeir, sem deildu 6. sætinu á lokaúrtökumótinu, allir á samtals 21 undir pari hver, voru franski kylfingurinn Clément Sordet, þýski kylfingurinn Bernd Ritthammer og sænski kylfingurinn Niklas Lemke. Síðan varð franski kylfingurinn Romain Langasque einn í 5. sæti á samtals 22 undir pari. Þeir hafa allir verið kynntir.

Daninn Jeff Winther og bandaríski kylfingurinn Kurt Katayama deildu 3. sætinu, á samtals  23 undir pari en báðir hafa verið kynntir. Bara á eftir að kynna þá tvo sem deildu 1. sætinu á samtals 24 undir pari, hvor, en það voru Alejandro Cañizares frá Spáni og Zander Lombard frá S-Afríku. Byrjað verður á að kynna Zander Lombard.

Zander Lombard fæddist 18. janúar 1995 í Pretoríu, Suður-Afríku og er því 24 ára.

Hann er 1,81 m á hæð og 85 kg.

Sem áhugamaður sigraði Lombard fjölmörg mót í Afríku og var fulltrúi S-Afríku í Eisenhower Trophy árin 2012 og 2014.

Helstu mótin, sem Lombard sigraði í sem áhugamaður voru:

*2011 South African U16 Strokeplay
* 2012 North West Open
* 2013 Namibian Open, Kwazulu-Natal Amateur Championship, IGT Winter Challenge Centurion

Árið 2014, varð Lomband í 2. sæti á The Amateur Championship, tapaði fyrir Bradley Neil í úrslitaleiknum 2&1.

Lombard gerðist síðan atvinnumaður í golfi seint á árinu 2014.

Lombard hlaut þátttökurétt í Opna breska 2016 Open eftir að hafa orðið í 2. sæti í sameiginlegu móti Evróputúrsins og Sólskinstúrsins s-afríska, Joburg Open, Hann náði niðurskurði og varð T-66, sem er besti árangur hans til þessa í risamóti.

Lombard varð síðan í 2. sæti á Rocco Forte Open á Sikiley 2017, þar sem hann tapaði naumlega fyrir Álvaro Quirós á 2. holu bráðabana.

Eftir að hafa byrjað keppnisárið 2018 illa náði Lombard loks T-6 árangri á Dubai Duty Free Irish Open. Þetta veitt honum einnig þátttökurétt í Opna breska 2018 Open Championship þar sem hann varð T-67. Í ágúst 2018 sigraði Lombard á Vodacom Origins (Zebula) á Sólskinstúrnum, sem er eini sigur hans sem atvinnumanns auk þess að deila 1. sætinu á lokaúrtökumótinu fyrir Evróputúrinn 2019!!!

Zander Lombard er nafn sem vert er að fylgjast með!