Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 10. 2019 | 14:00

Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2019: Anton Karlsson (19/27)

Golf 1 hefir á undanförnum árum kynnt „nýju strákana“ á Evróputúrnum og verður því fram haldið hér.

Lokaúrtökumótið í ár fór fram á Lumine golfstaðnum í Tarragona, nálægt Barcelona á Spáni, dagana 10.-15. nóvember 2018 og voru að venju spilaðir 6 hringir.

Efstu 25 og þeir sem jafnir voru í 25. sætinu hlutu kortið sitt á Evróputúrnum. Í ár voru það 27 sem hlutu kortið sitt á Evróputúrnum.

Líkt og á undanförnum árum verður hafist á að kynna þá sem urðu í síðustu sætunum fyrst og endað á þeim sem sigruðu í Q-school þ.e. urðu efstir í lokaúrtökumótinu.

Í ár deildu 8 strákar 20. sætinu og komust því 27 „nýir strákar“ á Evróputúrinn í ár gegnum lokaúrtökumótið. Einn þeirra sem ekki komst að þessu sinni, þrátt fyrir frábæra spilamennsku var Birgir Leifur „okkar“ Hafþórsson, GKG.

Þeir 8 sem deildu 20. sætinu, þ.e. urðu T-20 hafa nú allir verið kynntir en það eru: Kristian Krogh Johannessen, Filippo Bergamaschi, David Borda, Max Schmitt, Hugo León, Ben Evans, Kristoffer Reitan og Gavin Moynihan. Eins hefir sá verið kynntur sem einn hafnaði í 19. sæti en það var skoski kylfingurinn Marc Warren.

Sex kylfingar deildu 13. sætinu en það eru enski kylfingurinn Daníel Gavins, áströlsku kylfingarnir Deyen Lawson og Nick Cullen, Guido Migliozzi frá Ítalíu, Per Längfors frá Svíþjóð og Louis de Jager frá S-Afríku. Tveir deildu síðan 11. sætinu, báðir á samtals 19 undir pari þ.e Masahiro Kawamura frá Japan og Scott Gregory frá Englandi. Þeir hafa nú allir verið kynntir.

Næst verða kynntir þeir sem deildu 9. sætinu en það voru sænski kylfingurinn Anton Karlsson og spænski kylfingurinn Ivan Cantero Gutierrez, en þeir léku hringina 6 á lokaúrtökumótinu á samtals 20 undir pari. Ivan hefir verið kynntur og í dag er það Anton Karlsson.

Anton Karlsson fæddist 11. september 1993 í Uppsala, Svíþjóð og er því 25 ára.

Hann er 1,84 m á hæð og 73 kg.

Karlsson gerðist atvinnumaður í golfi 2013 þá aðeins 20 ára.

Hann spilaði á Nordic Golf League fram að 2016, en þá hlaut hann kortið sitt á 2. deildina í Evrópu, Challenge Tour.

Frá árinu 2015 hefir Karlsson tekið þátt í lokaúrtökumóti Evrópumótaraðarinnar og 2016 komst hann fyrst á Evróputúrinn, en gekk ekki nógu vel fyrsta keppnistímabilið sitt og komst ekki í gegnum Q-school 2017, en bætti nú fyrir það í Q-school 2018 og spilar aftur á Evróputúrnum 2019.

Hann er sem stendur nr. 469 á heimslistanum, en hann á eflaust eftir að hækka í næstu viku eftir glæsilegan árangur á Qatar Masters þar sem Anton Karlsson varð T-2, sem er besti árangur hans á Evróputúrnum til þessa.

Heima í Svíþjóð er Karlsson í Uppsala GC en hann segir samt að Barsebäck Golf & Country Club sé uppáhaldsgolfklúbbur hans í Svíþjóð.