Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 16. 2018 | 18:00

Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2019: Ben Evans (1/27)

Golf 1 hefir á undanförnum árum kynnt „nýju strákana“ á Evróputúrnum og verður því fram haldið hér.

Lokaúrtökumótið í ár fór fram á Lumine golfstaðnum í Tarragona, nálægt Barcelona á Spáni, dagana 10.-15. nóvember og voru að venju spilaðir 6 hringir.

Efstu 25 og þeir sem jafnir voru í 25. sætinu hlutu kortið sitt á Evróputúrnum.

Líkt og á undanförnum árum verður hafist á að kynna þá sem urðu í síðustu sætunum fyrst og endað á þeim sem sigruðu í Q-school þ.e. urðu efstir í lokaúrtökumótinu.

Í ár deildu 8 strákar 20. sætinu og komust því 27 „nýir strákar“ á Evróputúrinn í ár gegnum lokaúrtökumótið. Einn þeirra sem ekki komst að þessu sinni, þrátt fyrir frábæra spilamennsku var Birgir Leifur „okkar“ Hafþórsson, GKG.

Hér verður byrjað að kynna þann 1. af 8 sem deildu 20. sætinu þ.e. varð T-20 á lokaúrtökumótinu, en það er enski kylfingurinn Ben Evans.

Ben Evans fæddist í Maidstone Englandi 13. desember 1986 og er því 31 árs gamall.

Hann er 1,88 m á hæð og 76 kg.

Evans býr í East Sussex, Englandi.

Evans var í Claremont Preparatory School, St Leonards-on-Sea og síðan Millfield School, Somerset (2000–04).

Helstu sigrar hans sem áhugamanns í golfinu eru eftirfarandi:

2005 Faldo Series International Trophy
2006 Sunningdale Foursomes (with Danielle Masters), Faldo Series
2007 Faldo Series

Evans gerðist atvinnumaður í golfi 2008.

Árið 2014 varð Evans í 2. sæti a´The Foshan Open. Þessi góði árangur varð til þess að hann varð í 17. sæti á stigalista Áskorendamótaraðarinnar og gaf honum takmarkaðan spilarétt á Evróputúrnum.

Árið 2015 var Evans í 110. sæti á stigalista Evróputúrsins og hlaut því fullan spilarétt 2016. Hann var upphaflega sagður vera í 111. sæti og þá hefði hann misst full keppnisréttindi en hlaut síðan fullan spilarétt eftir að Brooks Koepka ákvað að snúa sér að fullu og öllu leyti að PGA í Bandaríkjunum.

Árangurinn á Evróputúrnum var ekki slíkur að hann héldi fullum spilaréttindum og því varð hann að fara aftur í Q-school og rétt náði að halda sér inni á túrnum varð T-20 eins og segir og hlýtur því kortið sitt að nýju og full spilaréttindi á Evróputúrnum keppnistímabilið 2018-2019.