Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 19. 2019 | 14:00

Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2019: Clément Sordet (20/27)

Golf 1 hefir á undanförnum árum kynnt „nýju strákana“ á Evróputúrnum og verður því fram haldið hér.

Lokaúrtökumótið í ár fór fram á Lumine golfstaðnum í Tarragona, nálægt Barcelona á Spáni, dagana 10.-15. nóvember 2018 og voru að venju spilaðir 6 hringir.

Efstu 25 og þeir sem jafnir voru í 25. sætinu hlutu kortið sitt á Evróputúrnum. Í ár voru það 27 sem hlutu kortið sitt á Evróputúrnum.

Líkt og á undanförnum árum verður hafist á að kynna þá sem urðu í síðustu sætunum fyrst og endað á þeim sem sigruðu í Q-school þ.e. urðu efstir í lokaúrtökumótinu.

Í ár deildu 8 strákar 20. sætinu og komust því 27 „nýir strákar“ á Evróputúrinn í ár gegnum lokaúrtökumótið. Einn þeirra sem ekki komst að þessu sinni, þrátt fyrir frábæra spilamennsku var Birgir Leifur „okkar“ Hafþórsson, GKG.

Þeir 8 sem deildu 20. sætinu, þ.e. urðu T-20 hafa nú allir verið kynntir en það eru: Kristian Krogh Johannessen, Filippo Bergamaschi, David Borda, Max Schmitt, Hugo León, Ben Evans, Kristoffer Reitan og Gavin Moynihan. Eins hefir sá verið kynntur sem einn hafnaði í 19. sæti en það var skoski kylfingurinn Marc Warren.

Sex kylfingar deildu 13. sætinu en það eru enski kylfingurinn Daníel Gavins, áströlsku kylfingarnir Deyen Lawson og Nick Cullen, Guido Migliozzi frá Ítalíu, Per Längfors frá Svíþjóð og Louis de Jager frá S-Afríku. Tveir deildu síðan 11. sætinu, báðir á samtals 19 undir pari þ.e Masahiro Kawamura frá Japan og Scott Gregory frá Englandi. Þeir hafa nú allir verið kynntir.

Sænski kylfingurinn Anton Karlsson og spænski kylfingurinn Ivan Cantero Gutierrez deildu 9. sætinu, en þeir léku hringina 6 á lokaúrtökumótinu á samtals 20 undir pari. Allir ofangreindu hafa verið kynntir.

Í dag verður hafist handa við að kynna þá sem deildu 6. sætinu á lokaúrtökumótinu, allir á samtals 21 undir pari hver,  en það eru franski kylfingurinn Clément Sordet, þýski kylfingurinn Bernd Ritthammer og sænski kylfingurinn Niklas Lemke. Byrjað verður á Sordet.

Clément Sordet fæddist 22. október 1992 og er því 26 ára.

Hann er 1,88 m á hæð og 78 kg.

Sordet var í bandaríska háskólagolfinu þar sem hann lék með skólaliði Texas Tech University og sigraði 6 sinnum í einstaklingskeppni.

Eftir útskrift frá Texas Tech og eftir að hafa spilað í Palmer Cup, árið 2015 gerðist Sordet atvinnumaður í golfi.

Hann byrjaði að spila á Áskorendamótaröð Evrópu (the Challenge Tour). Í ágúst 2015 sigraði hann í fyrsta móti sínu sem atvinnumaður þegar hann sigraði á the Northern Ireland Open, þar sem hann spilaði í boði styrktaraðila. Þetta var aðeins á 4. móti hans sem atvinnumanns. Sordet lauk 2015 með því að landa 2. sætinu á Thailand Golf Championship. Þetta var úrtökumót fyrir Opna breska þannig að hann hlaut þátttökurétt á Opna breska 2016.

Sordet vann 2. mót sitt sem atvinnumaður á Áskorendamótaröðinni árið 2016, þ.e. the Turkish Airlines Challenge. Síðan árið 2017 vann hann bæði the Viking Challenge og NBO Golf Classic Grand Final og varð í 2. sæti á stigalista Áskorendamótaðar Evrópu 2017 (ens.: Challenge Tour Order of Merit) sem varð til þess að hann fékk fullan spilarétt á Evrópumótaröðinni 2018. Honum gekk ekkert allt of vel og varð að fara í lokaúrtökumótið þar sem hann náði þeim glæsta árangri að verða T-6 og heldur því fullum spilaréttindum á Evrópumótaröðinni, mótaröð þeirra bestu í Evrópu 2019!