Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 26. 2019 | 14:00

Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2019: Niklas Lemke (21/27)

Golf 1 hefir á undanförnum árum kynnt „nýju strákana“ á Evróputúrnum og verður því fram haldið hér.

Lokaúrtökumótið í ár fór fram á Lumine golfstaðnum í Tarragona, nálægt Barcelona á Spáni, dagana 10.-15. nóvember 2018 og voru að venju spilaðir 6 hringir.

Efstu 25 og þeir sem jafnir voru í 25. sætinu hlutu kortið sitt á Evróputúrnum. Í ár voru það 27 sem hlutu kortið sitt á Evróputúrnum.

Líkt og á undanförnum árum verður hafist á að kynna þá sem urðu í síðustu sætunum fyrst og endað á þeim sem sigruðu í Q-school þ.e. urðu efstir í lokaúrtökumótinu.

Í ár deildu 8 strákar 20. sætinu og komust því 27 „nýir strákar“ á Evróputúrinn í ár gegnum lokaúrtökumótið. Einn þeirra sem ekki komst að þessu sinni, þrátt fyrir frábæra spilamennsku var Birgir Leifur „okkar“ Hafþórsson, GKG.

Þeir 8 sem deildu 20. sætinu, þ.e. urðu T-20 hafa nú allir verið kynntir en það eru: Kristian Krogh Johannessen, Filippo Bergamaschi, David Borda, Max Schmitt, Hugo León, Ben Evans, Kristoffer Reitan og Gavin Moynihan. Eins hefir sá verið kynntur sem einn hafnaði í 19. sæti en það var skoski kylfingurinn Marc Warren.

Sex kylfingar deildu 13. sætinu en það eru enski kylfingurinn Daníel Gavins, áströlsku kylfingarnir Deyen Lawson og Nick Cullen, Guido Migliozzi frá Ítalíu, Per Längfors frá Svíþjóð og Louis de Jager frá S-Afríku. Tveir deildu síðan 11. sætinu, báðir á samtals 19 undir pari þ.e Masahiro Kawamura frá Japan og Scott Gregory frá Englandi. Þeir hafa nú allir verið kynntir.

Sænski kylfingurinn Anton Karlsson og spænski kylfingurinn Ivan Cantero Gutierrez deildu 9. sætinu, en þeir léku hringina 6 á lokaúrtökumótinu á samtals 20 undir pari. Allir ofangreindu hafa verið kynntir.

Í dag verður hafist handa við að kynna þá sem deildu 6. sætinu á lokaúrtökumótinu, allir á samtals 21 undir pari hver, en það eru franski kylfingurinn Clément Sordet, þýski kylfingurinn Bernd Ritthammer og sænski kylfingurinn Niklas Lemke.  Sordet hefir þegar verið kynntur og í dag er það Niklas Lemke.

Niklas Lemke fæddist 23. apríl 1984 í Linköping, Svíþjóð og er því 34 ára.

Í dag býr hann í Gautaborg og heima í Svíþjóð er Lemke í Oijared golfklúbbnum.

Lemke er 1,85 m á hæð.

Sem áhugamaður tók Lemke þátt í mörgum liðakeppnum, sem hluti af landsliði Svíþjóð m.a. í Jacques Leglise Trophy 2001 (sigraði) Eisenhower Trophy 2002 og 2006 og St Andrews Trophy 2002.

Hann lék í bandaríska háskólagolfinu með liði Arizona State University og meðalhöggafjöldi hans þar, 70.04 er 3. besti meðalhöggafjöldinn í sögu skólans á eftir meðalhöggafjölda Paul Casey (69.87, 1999-2000) og Phil Mickelson (69.95, 1991-1992).

Niklas Lemke gerðist atvinnumaður í golfi 2007.

Eftir útskrift úr skólanum hefirLemke spilað bæði á Áskorendamótaröð Evrópu (Challenge Tour) og eins Web.com Tour í Bandaríkjunum.

Áhugamál Lemke utan golfsins eru íþróttir almennt.

Sem stendur er Lemke í 326. sæti heimslistans.