Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 5. 2019 | 10:00

Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2019: Romain Langasque (23/27)

Golf 1 hefir á undanförnum árum kynnt „nýju strákana“ á Evróputúrnum og verður því fram haldið hér.

Lokaúrtökumótið í ár fór fram á Lumine golfstaðnum í Tarragona, nálægt Barcelona á Spáni, dagana 10.-15. nóvember 2018 og voru að venju spilaðir 6 hringir.

Efstu 25 og þeir sem jafnir voru í 25. sætinu hlutu kortið sitt á Evróputúrnum. Í ár voru það 27 sem hlutu kortið sitt á Evróputúrnum.

Líkt og á undanförnum árum verður hafist á að kynna þá sem urðu í síðustu sætunum fyrst og endað á þeim sem sigruðu í Q-school þ.e. urðu efstir í lokaúrtökumótinu.

Í ár deildu 8 strákar 20. sætinu og komust því 27 „nýir strákar“ á Evróputúrinn í ár gegnum lokaúrtökumótið. Einn þeirra sem ekki komst að þessu sinni, þrátt fyrir frábæra spilamennsku var Birgir Leifur „okkar“ Hafþórsson, GKG.

Þeir 8 sem deildu 20. sætinu, þ.e. urðu T-20 hafa nú allir verið kynntir en það eru: Kristian Krogh Johannessen, Filippo Bergamaschi, David Borda, Max Schmitt, Hugo León, Ben Evans, Kristoffer Reitan og Gavin Moynihan. Eins hefir sá verið kynntur sem einn hafnaði í 19. sæti en það var skoski kylfingurinn Marc Warren.

Sex kylfingar deildu 13. sætinu en það eru enski kylfingurinn Daníel Gavins, áströlsku kylfingarnir Deyen Lawson og Nick Cullen, Guido Migliozzi frá Ítalíu, Per Längfors frá Svíþjóð og Louis de Jager frá S-Afríku. Tveir deildu síðan 11. sætinu, báðir á samtals 19 undir pari þ.e Masahiro Kawamura frá Japan og Scott Gregory frá Englandi. Þeir hafa nú allir verið kynntir.

Sænski kylfingurinn Anton Karlsson og spænski kylfingurinn Ivan Cantero Gutierrez deildu 9. sætinu, en þeir léku hringina 6 á lokaúrtökumótinu á samtals 20 undir pari. Allir ofangreindu hafa verið kynntir.

Þeir, sem deildu 6. sætinu á lokaúrtökumótinu, allir á samtals 21 undir pari hver, voru franski kylfingurinn Clément Sordet, þýski kylfingurinn Bernd Ritthammer og sænski kylfingurinn Niklas Lemke. Þeir hafa allir verið kynntir.

Nú á aðeins eftir að kynna þá sem urðu í efstu 5 sætunum, en þar eru franski kylfingurinn Romain Langasque sem varð einn í 5. sæti; Daninn Jeff Winther og bandaríski kylfingurinn Kurt Katayama, sem deildu 3. sætinu og síðan  Alejandro Cañizares frá Spáni og Zander Lombard frá S-Afríku sem deildu 1. sætinu. Í dag verður Langasque kynntur.

Romain Langasque fæddist 18. maí 1995 og er því 23 ára.

Langasque er 1,77 m á hæð og 75 kg.  Hann býr í Andorra.

Langasque sigraði í The Amateur Championship árið 2015 á Carnoustie Golf Links, þar sem hann hafði betur gegn Grant Forrest 4&2 í úrslita- viðureigninni.

Fyrir sigur sinn á Amateur Championship hlaut Langasque þátttökurétt á Opna breska 2015, þar sem hann náði niðurskurði og lauk keppni í 65. sæti – ekki slæmt fyrir 1. þáttöku í risamóti. Hann hlaut einnig þátttökurétt á The Masters risamótið 2016 og þar gerði hann enn betur, varð annar af 2 áhugamönnum sem komst í gegnum niðurskurð og lauk keppni T-39, sem til dagsins í dag er besti árangur Langasque á risamóti!

Sem áhugamaður í golfi sigraði Langasque í eftirfarandi mótum:

2011 Tournoi Federal Jeunes
2013 Grand Prix de la Ligue Messieurs
2014 Grand Prix de Bordeaux, Trophee des Regions
2015 Southern Cross Invitational, Coupe Frayssineau Mouchy, The Amateur Championship
2016 Spanish International Amateur Golf Championship

Eftir þátttökuna á Masters 2016 gerðist Langasque atvinnumaður í golfi.

Langasque spilaði á Áskorendamótaröð Evrópu (ens.: Challenge Tour) árið 2016, þar sem hann varð í 2. sæti á the Barclays Kenya Open, the D+D Real Slovakia Challenge og the Vierumäki Finnish Challenge. Hann varð í 9. sæti á  the Road to Oman, stigalista mótaraðarinnar og hlaut þar með kortið sitt á Evróputúrinn í fyrsta sinn.

Langasque hóf 2017 European Tour keppnistímabilið með því að landa 10. sætinu á  Australian PGA Championship. Þetta var eini topp-10 árangur hans og hann lauk veru sinni á Evróputúrnum í 151. sæti og missti þar með spilarétt sinn á bestu mótaröð Evrópu.

Í desember 2017 varð hann í 3. sæti á the AfrAsia Bank Mauritius Open, þar sem hann spilaði í boði styrktaraðia. Hann náði ekki niðurskurði í 5 af 6 mótum á Evróputúrnum, sem hann gat spilað í, en það síðasta var HNA Open de France í júlí 2018. Hann var því aftur á Áskorendamótaröðinni 2018 þar sem hann átti erfiða byrjun og var með minna en  €6,000 í vinningsfé, þar til um miðjan júlí. Eftir Le Vaudreuil Golf Challenge spilaði hann meira sólíd, náði 8 niðurskurðum í röð þ.á.m. varð hann T-5 á Kazakhstan Open í september og eins náði hann eina sigri sínum sem atvinnumanni til þess á the Hopps Open de Provence. Þrátt fyrir að verða í 4. sæti á the Ras Al Khaimah Challenge Tour Grand Final, varð hann í 19. sæti á the Road to Ras Al Khaimah stigalistanum og rétt missti af sæti á Evróputúrnum, sem þýddi að hann varð að taka þátt í Q-school, þar sem hann náði 5. sætinu og er nú aftur kominn á Evróputúrinn 2019.

Langasque hefir gengið ágætlega 2019 varð m.a. í 2. sæti á the South African Open í desember 2018. Mótið var jafnframt úrtökumót fyrir Opna breska 2019 og hlaut hann því þátttökurétt og verður Opna breska 2019 fyrsta risamótið, sem hann spilar í sem atvinnumaður.