Ragnheiður Jónsdóttir | september. 10. 2019 | 14:00

Nýju strákarnir á PGA 2020: Rafael Campos (6/50)

Eins og á undanförnum árum mun Golf 1 kynna „Nýju strákana“ á PGA Tour. Nú verða kynntir „nýju strákarnir“ keppnistímabilið 2019-2020 til sögunnar, en það eru sem fyrr efstu 25 á peningalista Korn Ferry Tour eftir 2018-2019 keppnistímabilið og síðan þeir 25 sem stóðu sig best í síðustu 3 mótunum á mótaröðinni þ.e. í Korn Ferry Tour Finals.

Fyrst verða kynntir þeir 25, sem urðu efstir á stigalista Korn Ferry Tour eftir reglulega tímabilið og hlutu þannig kortin sín á mótaröð þeirra bestu, PGA Tour, fyrst var kynntur sá sem varð í 25. sæti og rétt slapp inn á mótaröðina og síðan endað á þeim sem landaði 1. sæti stigalistans, Scottie Scheffler, með 2935 stig.

Síðan verða kynntir þeir 25 sem komust á PGA Tour gegnum Korn Ferry Tour Finals.

Í dag verður kynntur sá kylfingur varð í 20. sæti eftir reglulega tímabilið, Rafael Campos, sem var með 869 stig á stigalista Korn Ferry Tour.

Rafael Campos fæddist í San Juan á Puerto Rico og er 31 árs.

Í dag býr Campos í Guaynabo á Puerto Rico.

Hann á tvíburasystur, Cristinu og eins á hann eldri systur og yngri bróður.

Hann segist vera frábær í borðtennis, en byrðjaði að spila golf 9 ára.

Áhugamál utan golfsins eru sem segir borðtennis, íþróttir almennt og veiðar.

Hann byrjaði á PGA TOUR Latinoamérica: 2012 og var kominn á forvera Korn Ferry Tour: 2016.

Árið 2019 vann hann fyrsta og eina sigur sinn á Korn Ferry Tour þ.e. 2019 The Bahamas Great Abaco Classic í The Abaco Club.