Ragnheiður Jónsdóttir | september. 29. 2022 | 18:00

Nýju strákarnir á PGA 2023 (2/50): Kevin Roy

Hér verður fram haldið  að kynna stuttlega einn þeirra 25 kylfinga sem hlutu kortið sitt á PGA Tour eftir að hafa orðið í einu af 25 efstu sætum á Korn Ferry Tour eftir reglulega keppnistímabilið 2022.
Númer tvö sem kynntur verður er Kevin Roy, sem varð í 24. sæti.

Kevin Roy fæddist í Syracuse, New York, 15. mars 1990 og er því 32 ára.

Hann útskrifaðist frá Long Beach State University 2012, með gráðu í samskiptafræðum (ens.: Communications).

Pabbi Kevin, Jim Roy var bæði á PGA TOUR og PGA TOUR Champions.

Roy hins vegar var kominn á Korn Ferry Tour árið 2019 og síðan 3 árum seinna á 2022- 2023 keppnistímabil PGA Tour.

Ýmislegt um Kevin Roy:

Ef hann mætti velja sér kynnislag þegar hann labbar upp á teig væri það:   „Born in the U.S.A.“ með Bruce Springsteen.

Hann starfaði m.a. við sölu á lækningavörum og í  Bellevue Country Club í Syracuse, New York.

Eitt af því skemmtilegasta í golfinu var að vera kaddý fyrir pabba í  U.S. Senior Open árið 2018. Aðrar góðar minningar úr golfinu eru þegar hann náði fyrsta ási sínum 16 ára á heimavelli notandi járn vinar síns og vera á vallarmeti 9 undir pari á úrtökumóti fyrir PGA Tour árið 2012 með pabba sinn á pokanum.

Það sem er sérstakt við Kevin Roy er að hann notar alltaf 25 centa pening frá 7. áratugnum, sem flatarmerki.

Meðal áhugamála er allt sem er utandyra, að vera á bát, veiða og fara í ræktina.

Í dag býr Roy í Tampa, Flórída, ásamt eiginkonu sinni Annie Sabo, en meðal áhugamála sinna segir Roy einnig vera að vera heima með konunni sinni og hundi.

Sem stendur er Kevin Roy nr. 401 á heimslistanum.