Ragnheiður Jónsdóttir | október. 28. 2018 | 14:00

Nýju strákarnir á PGA Tour 2019: Carlos Ortiz (5/50)

Eins og á undanförnum árum mun Golf 1 kynna „Nýju strákana“ á PGA Tour keppnistímabilið 2018-2019 til sögunnar, en það eru sem fyrr efstu 25 á peningalista Web.com Tour eftir 2017-2018 keppnistímabilið og síðan þeir 25 sem stóðu sig best í síðustu 4 mótunum á mótaröðinni þ.e. í Web.com Finals.

Fyrst verður byrjað að kynna þá 25 sem urðu efstir á peningalista Web.com Tour eftir reglulega tímabilið og verður nú kynntur sá sem varð í 21. sæti peningalistans, Carlos Ortiz. Eftir að efstu 25 á peningalista Web.com Tour hafa verið kynntir verða þeir 25 kynntir sem urðu efstir á Web.com Finals.

Carlos Ortiz fæddist 24. apríl 1991 og er því 27 ára.

Hann er frá Jalisco í Mexíco

Ortiz er 1,83 m á hæð og 68 kg.

Á 2017-2018 keppnistímabilinu á Web.com Tour var Ortiz 4 sinnum meðal efstu 10 í mótum á mótaröðinni, en það skilaði honum í 21. sæti peningalistans og því spilar Ortiz á PGA Tour keppnistímabilið 2018-2019.