Ragnheiður Jónsdóttir | október. 27. 2018 | 14:00

Nýju strákarnir á PGA Tour 2019: Brady Schnell (4/50)

Eins og á undanförnum árum mun Golf 1 kynna „Nýju strákana“ á PGA Tour keppnistímabilið 2018-2019 til sögunnar, en það eru sem fyrr efstu 25 á peningalista Web.com Tour eftir 2017-2018 keppnistímabilið og síðan þeir 25 sem stóðu sig best í síðustu 4 mótunum á mótaröðinni þ.e. í Web.com Finals.

Fyrst verður byrjað að kynna þá 25 sem urðu efstir á peningalista Web.com Tour eftir reglulega tímabilið og verður nú kynntur sá sem varð í 22. sæti peningalistans, Brady Schnell. Eftir að efstu 25 á peningalista Web.com Tour hafa verið kynntir verða þeir 25 kynntir sem urðu efstir á Web.com Finals.

Brady Schnell fæddist 3. apríl 1985 í Spencer, Iowa og er því 33 ára.

Hann er 1,75 m á hæð og 79 kg.

Á 2017-2018 keppnistímabilinu á Web.com Tour vann Schnell 1 sigur og var tvívegis meðal topp-10 í mótum, en þessi árangur skilaði honum 22. sætinu á peningalista mótaraðarinnar og því spilar Schnell á PGA Tour keppnistímabilið 2018-2019, þar sem hann verður nýliði.

Fræðast má nánar um Schnell með því að fara á heimasíðu hans með því að SMELLA HÉR: