Ragnheiður Jónsdóttir | október. 24. 2018 | 14:00

Nýju strákarnir á PGA Tour 2019: Hank Lebioda (1/50)

Eins og á undanförnum árum mun Golf 1 kynna „Nýju strákana“ á PGA Tour keppnistímabilið 2018-2019 til sögunnar, en það eru sem fyrr efstu 25 á peningalista Web.com Tour eftir 2017-2018 keppnistímabilið og síðan þeir 25 sem stóðu sig best í síðustu 4 mótunum á mótaröðinni þ.e. í Web.com Finals.

Fyrst verður byrjað að kynna þá 25 sem urðu efstir á peningalista Web.com Tour eftir reglulega tímabilið og byrjað á þeim sem rétt slapp inn á mótaröðina en það er Hank Lebioda.  Eftir að efstu 25 á peningalista Web.com Tour hafa verið kynntir verða þeir 25 kynntir sem urðu efstir á Web.com Finals.

En hér fyrst kynningin á Hank Lebioda.

Hank Lebioda er fæddur 14. janúar 1994 og er því 24 ára.

Hann er 1,8 m á hæð og 86 kg.

Lebioda býr í Winter Springs, Flórída og tók þátt í bandaríska háskólagolfinu með háskólaliði síðu Florida State. Á námsárum sínum þar vann hann tvívegis í einstaklingskeppnum og eftir 1. tímabil sitt var hann valinn ACC nýliði ársins. Sem efstubekkingur var hann valinn ACC leikmaður ársins. Þegar hann hóf háskólanám sitt var hann í 4. sæti á heimslista Golf World´s Junior Ranking.

Lebioda er með Crohn´s sjúkdóminn, sem gerir vegferð hans í golfinu býsna sérstaka.

Árið 2016, þ.e. eftir útskrift 22 ára gerðist Lebioda atvinnumaður í golfi og hóf ferilinn á kanadíska PGA Tour. Árið 2017 spilaði hann bæði á  PGA Tour Canada og PGA Tour Latinoamérica. Fyrsti sigur hans sem atvinnumaður kom á kanadíska PGA á Mackenzie Investments Open, þar sem hann átti 8 högg á næsta mann.

Þar sem Lebioda var meðal efstu 10 á 2017 PGA Tour Latinoamérica komst hann í lokaúrtökumót Web.com Tour, þar sem hann varð T-30, sem tryggði honum kortið hans á Web.com Tour fyrir 2018 keppnistímabilið.

Á nýliðaári sínu varð hann 4 sinnum með efstu 10 í mótum og sem segir í 25. og síðasta sæti þeirra á peningalistanum sem fengu keppnisrétt á PGA Tour og því rétt slapp hann inn og spilar á PGA Tour keppnistímabilið 2018-2019.