Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 29. 2019 | 18:00

Nýju strákarnir á PGA Tour 2019: Max Homa (38/50)

Eins og á undanförnum árum mun Golf 1 kynna „Nýju strákana“ á PGA Tour keppnistímabilið 2018-2019 til sögunnar, en það eru sem fyrr efstu 25 á peningalista Web.com Tour eftir 2017-2018 keppnistímabilið og síðan þeir 25 sem stóðu sig best í síðustu 4 mótunum á mótaröðinni þ.e. í Web.com Finals.

Nú hafa verið kynntir þeir 25, sem urðu efstir á peningalista Web.com Tour eftir reglulega tímabilið og hlutu þannig kortin sín á mótaröð þeirra bestu, PGA Tour, síðast var kynntur sá sem varð í 1. sæti peningalistans, Sungjae Im frá Suður-Kóreu.

Nú er aðeins eftir að kynna þá 25, sem urðu efstir á Web.com Finals og hlutu þannig þáttökurétt á mótum PGA Tour. Fyrst var kynntur sá sem rétt slapp í hóp þeirra 25 efstu en það var Jim Knous, síðan Fabián Gómez frá Mexíkó, kanadíski kylfingurinn Ben Silverman, bandarísku kylfingarnir Michael Hayes Thompson, Nicholas Lindheim, Wes Roach og Cameron Tringale, Curtis Luck (16. sæti) frá Ástralíu, Dylan Frittelli frá S-Afríku og Sepp Straka frá Austurríki; Stephan Jäger, sem varð í 15. sæti og Roberto Diaz, sem varð í 14. sæti.

Í dag verður kynntur sá sem var í 13. sæti á Web.com Tour Finals, en það er Max Homa, sem vann sér inn 78,200 dollara á Web.com Finals.

Max Homa fæddist í Burbank, Kaliforníu, 19. nóvember 1990; sonur John Homa og Bonnie Milstein og er því 28 ára.

Hann rétt slapp inn á  PGA Tour keppnistímabilið 2014-2015 og var nr. 32 og sá síðasti til þess að hljóta kortið sitt og var það fyrsta keppnistímabil hans á PGA Tour

Max Homa útskrifaðist frá Valencia High School árið 2009 og spilaði í bandaríska háskólagolfinu með golfliði UCLA þ.e. University of California, Berkeley .

Í UCLA var Homa first-team All-American sem efstibekkingur (ens. senior). Árið 2010, náði Homa í fjórðungsúrslit U.S. Amateur áður en hann tapaði fyrir þeim sem átti titil að verja liðsfélaga sínum í golfliði UCLA , An Byeong-hun.

Homa keppti sem áhugamðaur í Opna bandaríska risamótinu 2013 og sigraði í einstaklingskeppninni árið 2013 í NCAA Division I Championship. Homa var valinn í bandaríska liðið sem tók þátt í Walker Cup og gerðist atvinnumaður í golfi í kjölfarið árið 2013.

Í október 2013, varð Homa T-9 á Frys.com Open, sem var fyrsta PGA Tour mótið sem hann spilaði í sem atvinnumaður. Í desember 2013 varð hann T-6 í Web.com Tour qualifying school.

Í maí 2014 sigraði Homa í fyrsta móti sínu sem atvinnumaður en það var BMW Charity Pro-Am. á Web.com Tour.

Keppnistímabilið 2014-2015 var fyrsta keppnistímabil Homa með full spilaréttindi og þá var Homa því svo sannarlega „nýr strákur“!!! Nú, 2019 er hann að nýju kominn á PGA Tour.