Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 16. 2018 | 14:00

Nýju strákarnir á PGA Tour 2019: Kyle Jones (15/50)

Eins og á undanförnum árum mun Golf 1 kynna „Nýju strákana“ á PGA Tour keppnistímabilið 2018-2019 til sögunnar, en það eru sem fyrr efstu 25 á peningalista Web.com Tour eftir 2017-2018 keppnistímabilið og síðan þeir 25 sem stóðu sig best í síðustu 4 mótunum á mótaröðinni þ.e. í Web.com Finals.

Fyrst verður byrjað að kynna þá 25 sem urðu efstir á peningalista Web.com Tour eftir reglulega tímabilið og verður nú kynntur sá sem varð í 11. sæti peningalistans, Kyle Jones. Eftir að efstu 25 á peningalista Web.com Tour hafa verið kynntir verða þeir 25 kynntir sem urðu efstir á Web.com Finals.

Kyle Jones fæddist 15. júlí 1993 í Victorville í Kaliforníu og er því 25 ára.

Hann var í Snowflake High School í Snowflake, Arizona, en Jones segir þann bæ vera heimabæ sinn. Meðal fyrstu golf minninga hans er að fara á   Waste Management Phoenix Open.

Það var pabbi Kyle Jones sem fékk hann til þess að byrja í golfi en í 4. bekk fékk mamma hans vinnu á golfvelli og hann tók strætó að vellinum þar sem hún vann úr skólanum á hverjum degi og æfði sig þar, þar til mamma hans fékk að fara heim úr vinnunni.

Jones gerðist atvinnumaður í golfi 2015 þegar hann útskrifaðist í Corporate Communications frá Baylor, þar sem hann spilaði með golfliði skólans öll 4 ár.   Árið 2015 var hann í Palmer Cup liði Bandaríkjanna.

Árið 2016 var Jones kominn á Web.com Tour. Á 2017-2018 keppnistímbilinu varð Jones 4 sinnum meðal efstu 10 og því nældi hann sér í 11. sæti peningalistans og spilar á bestu karlamótaröð heims í golfinu, PGA Tour 2018-2019 keppnistímabilið.

Aðspurður hvort hann hafi hitt einhvern af fræga fólkinu segist Jones eitt sinn hafa hitt fv. Bandaríkjaforseta George W. Bush þegar hann var við golfæfingar í Waco.

Uppáhaldslið Jones í íþróttum eru Arizona Diamondbacks og Cleveland Cavaliers.

Í uppáhaldi hjá Kyle Jones er hafnarbolti og hann reyndir að fara á eins marga hafnarboltavelli og hann getur þegar hann er á ferðalögum.