Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 15. 2012 | 17:00

Nýju stúlkurnar á LET 2012 (34. grein af 34): Jodi Ewart

Það var enska stúlkan Jodi Ewart sem bar sigurorð af öllum í Q-school LET nú fyrr á árinu.  Með þessari grein hafa „nýju kylfingarnir“ á öllum 4 helstu golfmótaröðum heims, árið 2012 verið kynntir: PGA; LPGA; Evróputúrsins og nú LET.  Það er ágætt því nú fara að hefjast ný úrtökumót og mun Golf 1 halda áfram að kynna „nýju kylfingana“, sem eru oftar ekki eru gamlir í hettunni að vinna sér inn aukinn spilarétt … en svo alltaf einhverjir nýjir áhugaverðir inn á milli.

Jodi Ewart

En nú að Jodi Ewart sigurvegara Q-school LET 2012, þeirri sem varð í 1. sæti.

Jodi Ewart er fædd 7. janúar 1988 í Northallerton í Englandi og er því 24 ára. Hún byrjaði að spila golf 8 ára. Meðal áhugamála Jodi eru að slappa af á strönd, horfa á sjónvarp, verja tíma með kærestanum og vera í ræktinni. Hún segir afa sinn og þjálfara Andy Marshall hafa haft mest áhrif á að hún lagði golfið fyrir sig. Hún stundaði nám við University of New Mexico og útskrifaðist 2010, sem sálfræðingur. Hún býr í Flórída þar sem hún er við æfingar í IMG Leadbetter Golf Academy.  Fylgjast má með Jodi á Twitter á: @Jodi_Ewart.

Sem áhugamaður sigraði Jodi á Daily Telegraph Junior Championship 2005 í Dubai, Hún var í Great Britain & Ireland Curtis Cup liðinu 2008 og í Vagliano liðinu 2009.  Hún var enskur meistari 2008 og 2009.  Í University of New Mexico sigraði Jodi Ewart 5 sinnum í einstaklingskeppnum í bandaríska háskólagolfinu og er tvöfaldur NCAA All-American (2009, 2010). Árið 2009 var Jodi valin í NGCA All-American First Team.

Þann 1. júní 2010 gerðist Ewart atvinnumaður í golfi. Árið 2011 spilaði hún í 13 mótum á  LPGA Futures Tour (nú Symetra Tour) og varð 4 sinnum meðal 10 efstu og besti árangur hennar var T-3 á  the Vidalia Championship. Hún varð í 4. sæti á LPGA Qualifying School og hefir verið með fullan keppnisrétt á LPGA í ár líka.  (Sjá má kynningu Golf 1 á Jodi Ewart sem nýju stúlkunni á LPGA með því að SMELLA HÉR:  

Glæsilegur árangur þetta, að verða í 4. sæti í Q-school LPGA og sigra í Q-school LET og hefir eiginlega verið hljóðar um Jodi Ewart en efni standa til – hún er einfaldlega mikið framtíðarefni.