Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 23. 2014 | 14:00

Nýju stúlkurnar á LET 2014: Anaïs Magetti (17/31)

Það var 31 stúlka sem komst í gegnum Lalla Aicha Tour School í Marokkó og hlaut kortið sitt á Evrópumótaröð kvenna, LET (Ladies European Tour).

Mótið fór fram dagana 14.-18. desember 2013 á golfvöllum Al Maaden og Samanah CC í Marrakech, Marokkó.  Leiknir voru 5 hringir  og eftir 4. hringinn var stúlkunum 92 sem upphaflega voru 94, fækkað niður í 60 og þar af hlutu 31 efstu eftir 5. og lokahringinn keppnisrétt á LET fyrir keppnistímabilið 2014.

Það voru 4 stúlkur sem deildu 15. sætinu (voru jafnar í 15.-18. sætinu) og komust inn á mótaröðina með skor upp á samtals 1 undir pari, 359 högg: Anaïs Magetti; Maria SalinasIsabelle Boineau og Cathryn Bristow, en þar af hafa þrjár síðastnefndu þegar verið kynntar.

Sú sem verður kynnt í kvöld er svissneski kylfingurinn Anaïs Magetti, sem varð í 15.sætinu á eins og segir 359 höggum (73 71 72 70 73).

Anaïs Magetti fæddist í Losone, 9. desember 1990 og er því 23 ára.  Hún talar ítölsku, frönsku, þýsku og ensku.  Hún nam viðskiptafræði við íþróttaskólann sem hún var í. Golfklúbburinn sem  Anaïs er í, í Sviss, er Golf Gerre Losone í Ticino héraðinu í Sviss.

Sem áhugamaður spilaði  Anaïs á nokkrum mótum á LET.Hún varð í 22. sæti á Deutsche Bank Ladies Swiss Open 2008.  Hún varð T-14 á Deutsche Bank Ladies Swiss Openn 2010. Hún var á besta skorinu 7 undir pari (64) á  Swiss International Championship árið 2011. Eins spilaði Anaïs á nokkrum mótum á Suncoast Ladies Series í Flórída 2011. Anaïs gerðist atvinnumaður í golfi í janúar 2012. Hún komst fyrst á Evrópumótaröð kvenna 2012 þ.e. eftir að hafa landað 2. sætinu í Q-school LET á La Manga í febrúar 2012.  Nú varð hún í 15. sætinu.

Magetti er meðal bestu kvenkylfinga Svisslendinga.

Meðal áhugamála  Anaïs er að vera á snjóborði, horfa á hokkí, hlusta á góða tónlist, að spila tennis og sósíalisera.