Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 19. 2015 | 17:00

Nýju stúlkurnar á LET 2015: Elina Nummenpaa (15/34)

Þann 17.-21. desember 2014 fór fram lokaúrtökumót fyrir Evrópumótaröð kvenna í Samanah Al Maaden golfklúbbnum í Marokkó.

Nánar tiltekið 2015 Lalla Aicha Tour School Final Qualifying eins og mótið heitir á ensku.

Meðal þátttakenda á lokaúrtökumótinu í ár voru tveir íslenskir kvenkylfingar Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR og Valdís Þóra Jónsdóttir, GL, en þær komust því miður ekki í hóp þeirra sem hlutu keppnisrétt á LET 2015.

Golf 1 mun, eins og undanfarin ár kynna allar stúlkur sem hlutu keppnisrétt á Evrópumótaröð kvenna (ens. Ladies European Tour skammst. LET) í gegnum lokaúrtökumótið, en í þetta sinn voru þær 34.

Nú hafa allar stúlkur verið kynntar sem urðu í 26.-34. sætinu, allar á samtals 1 yfir pari.

Næst verða þær 7 stúlkur kynntar sem urðu í 19.-25. sætinu, allar á samtals sléttu pari, en það eru: finnsku stúlkurnar Marika Voss, Elina Numenpaa og Linda Henriksson; Lien Willems frá Belgíu; Alex Peters frá Englandi; Nina Muehl frá Austurríki og Marta Sanz frá Spáni.

Sú sem kynnt verður í dag er finnska stúlkan Elina Nummenpaa.  Hún var á samtals sléttu pari, skorinu 360 högg (72 72 74 70 72)

Elina Nummenpaa fæddist 7. september 1983 í Turku, Finnlandi og er því 31 árs.

Elina komst fyrst í gegnum Q-school Evrópumótaraðar kvenna, einmitt á Lalla Aicha móti í Marokkó í fyrra og hittifyrra og þá var eftirfarandi kynningargrein skrifuð hér á Golf 1 um Elinu, sem enn á við í dag SMELLIÐ HÉR: