Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 16. 2015 | 14:00

Nýju stúlkurnar á LET 2015: Kelsey MacDonald (29/34)

Þann 17.-21. desember 2014 fór fram lokaúrtökumót fyrir Evrópumótaröð kvenna í Samanah Al Maaden golfklúbbnum í Marokkó.

Nánar tiltekið 2015 Lalla Aicha Tour School Final Qualifying eins og mótið heitir á ensku.

Meðal þátttakenda á lokaúrtökumótinu í ár voru tveir íslenskir kvenkylfingar Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR og Valdís Þóra Jónsdóttir, GL, en þær komust því miður ekki í hóp þeirra sem hlutu keppnisrétt á LET 2015.

Golf 1 mun, eins og undanfarin ár kynna allar stúlkur sem hlutu keppnisrétt á Evrópumótaröð kvenna (ens. Ladies European Tour skammst. LET) í gegnum lokaúrtökumótið, en í þetta sinn voru þær 34.

Nú hafa allar stúlkur verið kynntar sem urðu í 8.-34. sætinu.

Næst verða kynntar þær Kelsey Macdonald frá Skotlandi og Bonita Bredenhann frá Namibíu, sem deildu 6.-7. sætinu.

Í gær var Bredenhann kynnt og í dag er það Kelsey MacDonald.

Kelsey MacDonald

Kelsey MacDonald

Hún lék á samtals 8 undir pari, skorinu 354 höggum (70 74 66 70 72).

Kelsey MacDonald fæddist 5. október 1990 í Inverness, Skotlandi og er því 24 ára.  Hún á því sama afmælisdag og golfdrottningin Laura Davies.

Meðal áhugamála MacDonald eru að halda sér í formi, sósíalísera og fara í bíó og út að borða.

Helsti stuðningsaðili MacDonald er Robert Rock Academy.

Vefsíða MacDonald er í vinnslu en fylgjast má með henni á Twitter með því að SMELLA HÉR: 

Sjá má nýlegt viðtal við MacDonald frá því s.l. sumar, sem fréttamaður LET Access tók með því að SMELLA HÉR: