Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 16. 2017 | 15:00

Nýju stúlkurnar á LET 2017: Ana Menendez (46/66)

Lokaúrtökumót LET fór fram á golfvöllum í Samanah og Almelkis golfklúbbana í Marokkó, dagana 17.-21. desember 2016 og voru spilaðir hefðbundnir 5 hringir.

Efstu 30 í lokaúrtökumóti LET, Lalla Aicha Q-school í Marokkó hlutu fullan og næstu 36 þ.e. þær sem höfnuðu í sætum 31-66 takmarkaðan spilarétt.

Stoltið okkar, sú sem hafnaði í 2. sæti, Valdís Þóra Jónsdóttir, hefir þegar verið kynnt en nú verður hafist handa við að kynna hinar.

Nú erum við að byrja að kynna þær heppnu, sem höfnuðu í 21. sæti og hlutu fullan spilarétt á LET; en það voru 4 stúlkur sem allar léku á 4 undir pari, 356 höggum, hver.

Þetta eru þær Ana Menendez frá Mexikó (70 67 73 74 72); Lauren Taylor frá Englandi (73 76 69 65 73); Frida Gustafsson Spang frá Svíþjóð (69 72 69 71 75) og Puk Lyng Thomsen frá Danmörku (71 71 70 67 77).

Puk Lyng Thomsen frá Danmörku,  Frida Gustafsson Spang frá Svíþjóð oog Lauren Taylor frá Englandi voru kynntar i gær og nú á bara eftir að kynna Önu Menendez frá Mexíkó.

Ana Menendesz fæddist í Mexíkó City 15. janúar 1991 og er því 26 ára.

Þeir sem hafa haft mest áhrif á golfferil Önu eru faðir hennar Simon Menendez og þjálfari hennar Horacio Mora.

Ana gerðist atvinnumaður í golfi á afmælisdaginn 15. janúar 2015.

Uppáhaldslið Önu er NC Wolf State.

Uppáhaldsáhugamál Önu er lestur, listir, fitness og yoga.