Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 12. 2017 | 14:00

Nýju stúlkurnar á LET 2017: Madelene Sagström nr. 1 – (66/66)

Lokaúrtökumót LET fór fram á golfvöllum í Samanah og Almelkis golfklúbbana í Marokkó, dagana 17.-21. desember 2016 og voru spilaðir hefðbundnir 5 hringir.

Efstu 30 í lokaúrtökumóti LET, Lalla Aicha Q-school í Marokkó hlutu fullan og næstu 36 þ.e. þær sem höfnuðu í sætum 31-66 takmarkaðan spilarétt.

Sigurvegari lokaúrtökumótsins er hin sænska Madelene Sagström.

Madelene fæddist í Uppsala í Svíþjóð 13. nóvember 1992 og er því 24 ára.

Í liðakeppnum sem áhugamaður tók Madelene m.a. þátt í:

Vagliano Trophy (var í liði Evrópu): 2011 (sigurliðinu), 2015 (sigurliðinu)
Espirito Santo Trophy (í golflandsliði Svía): 2012, 2014

Madelene var í bandaríska háskólagolfinu og lék þar með liði LSU Lady Tigers í Louisiana State University í Baton Rouge, Louisiana. Sjá má afrek Madelene í bandaríska háskólagolfinu með því að SMELLA HÉR: 

Á árinu 2016 vann Madelene 3 mót á Symetra Tour og var í kjölfarið valinn leikmaður ársins og nýliði ársins.

Mótin sem Madelene sigraði á voru eftirfarandi:

1. 17. apríl 2016 Chico’s Patty Berg Memorial −9 (69-66-69-75=269) átti 1 högg á Sophiu Popov
2. 8. maí 2016 Self Regional Healthcare Foundation Classic −6 (66-67-71-74=278) átti 6 högg á Wichanee Meechai frá Thaílandi
3. 2. október 2016 Murphy USA El Dorado Shootout −7 (69-68-72=209) átti 2 högg á Beccu Huffer frá Bandaríkjunum.

Sagström tók þátt í 14 Symetra Tour mótum og var með 3 sigra og var 11 sinnum meðal efstu 10.  Vegna sigra sinna í 2. deildinni í bandaríska kvennagolfinu hlaut Sagström sjálfkrafa fullan spilarétt á LPGA, keppnistímabilið 2017.

Sagström er því bæði komin með spilarétt á LET og LPGA, keppnistímabilið 2017.