Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 3. 2020 | 14:00

Nýju stúlkurnar á LET 2020: Franzisca Friedrich (24/65)

Á lokahring lokaúrtökumótsins fyrir LET spila 60 efstu og þær sem jafnar eru í 60. sætinu.

Í ár voru 7 stúlkur jafnar í 59. sætinu eftir 4. hring úrtökumótsins og spiluðu því alls 65 stúlkur lokahringinn og verða allar 65 kynntar, en lokastaðan í úrtökumótinu var eftirfarandi SMELLIÐ HÉR:

Dansað var úr röðinni og íslenski keppandinn, sem komst í flokk 8a, Guðrún Brá Björgvinsdóttir þegar verið kynnt, sem og enska stúlkan Rachel Drummond, sem var meðal þeirra 7 sem rétt sluppu inn á lokahringinn.

Nú verða stúlkurnar kynntar eftirleiðis eftir þeirri sætisröð sem þær lentu í á lokaúrtökumótinu. Sú sem varð í 65. sætinu, sænski kylfingurinn Isabelle Johansson hefir þegar verið kynnt. Næst voru kynntar þær sem deildu 61. sætinu og þær tvær sem deildu 57. sætinu, þær 7 sem deildu 50. sætinu og þær 7 (6), sem urðu T-43.

Næst verða kynntar þær 6 stúlkur sem deildu 37. sætinu (þ.e. urðu T-37 á lokaúrtökumótinu) en það voru: sænsku kylfingarnir Mimmi Bergman, Annelie Sjoholm og My Leander; Anais Maggetti frá Sviss;  enski kylfingurinn Inci Mehmet og mmx frá Þýskalandi.  Þær léku allar hringina 5 á samtals 9 yfir pari, 370 höggum.

Byrjað verður á að kynna Friedrich, sem varð uppreiknað í 42. sætinu á lokaúrtökumótinu og mun því aðallega spila á LET Access.

Franziska Friedrich fæddist í Roth, Þýskalandi, þann 8. janúar 1995 og er því 25 ára.

Hún byrjaði að spila golf 9 ára.

Friedrich lék í bandaríska háskólagolfinu með liði San José háskólans. Um afrek hennar í háskólagolfinu má lesa með því að SMELLA HÉR:

Utan golfsins finnst Franzi, (eins og hún er oft kölluð) skemmtilegast að vera á skíðum eða spila á píanó.

Friedrich er ekki enn gengin á vit atvinnumennskunnar og er því enn áhugamaður.

Í dag býr Friedrich í Heideck í Þýskalandi.