Ragnheiður Jónsdóttir | október. 21. 2020 | 14:00

Nýju stúlkurnar á LET 2020: Sarina Schmidt (59/65)

Á lokahring lokaúrtökumótsins fyrir LET spila 60 efstu og þær sem jafnar eru í 60. sætinu.

Í ár voru 7 stúlkur jafnar í 59. sætinu eftir 4. hring úrtökumótsins og spiluðu því alls 65 stúlkur lokahringinn og verða allar 65 kynntar, en lokastaðan í úrtökumótinu var eftirfarandi SMELLIÐ HÉR:

Dansað var úr röðinni og hefir íslenski keppandinn, sem komst í flokk 8a, Guðrún Brá Björgvinsdóttir, þegar verið kynnt, sem og enska stúlkan Rachel Drummond, sem var meðal þeirra 7 sem rétt sluppu inn á lokahringinn.

Nú verða stúlkurnar kynntar eftirleiðis eftir þeirri sætisröð sem þær lentu í á lokaúrtökumótinu. Sú sem varð í 65. sætinu, sænski kylfingurinn Isabelle Johansson hefir þegar verið kynnt. Næst voru kynntar þær sem deildu 61. sætinu og þær tvær sem deildu 57. sætinu, þær 7 sem deildu 50. sætinu, þær 7 (6), sem urðu T-43, þær 6 sem urðu T-37 og þær 4, sem deildu 33. sætinu; þær 7 stúkur sem deildu 27. sætinu; þær tvær sem urðu T-25; þá sem varð ein í 24. sætinu; þær fjórar sem deildu 20. sætinu;  þær 10 stúlkur sem voru T-10 og loks þær tvær sem urðu T-8

Næst verður kynnt sú stúlks sem varð í 7. sæti á lokaúrtökumótinu en það var Sarina Schmidt.  Hún lék á samtals 1 yfir pari, 362 höggum og tryggði sér þar með öruggt sæti og fullan spilarétt á sterkustu kvenmótaröð Evrópu, Ladies European Tour (skammst: LET).

Sarina Schmidt fæddist í München, Þýskalandi 9. maí 1999 og er því aðeins 21 árs.

Heima í Þýskalandi er hún í Golf Club München Valley.

Sarina fékk fyrsta ásinn sinn í fyrra á 3. hring European Ladies Amateur Championship, sem fram fór í Parkstone golfklúbbnum í Englandi.

Hún gerðist atvinnumaður í golfi 2020.

Fræðast má nánar um Sarinu á Instagram með því að SMELLA HÉR: