Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 28. 2020 | 14:00

Nýju stúlkurnar á LET 2020: Anna Magnusson (32/65)

Á lokahring lokaúrtökumótsins fyrir LET spila 60 efstu og þær sem jafnar eru í 60. sætinu.

Í ár voru 7 stúlkur jafnar í 59. sætinu eftir 4. hring úrtökumótsins og spiluðu því alls 65 stúlkur lokahringinn og verða allar 65 kynntar, en lokastaðan í úrtökumótinu var eftirfarandi SMELLIÐ HÉR:

Dansað var úr röðinni og íslenski keppandinn, sem komst í flokk 8a, Guðrún Brá Björgvinsdóttir þegar verið kynnt, sem og enska stúlkan Rachel Drummond, sem var meðal þeirra 7 sem rétt sluppu inn á lokahringinn.

Nú verða stúlkurnar kynntar eftirleiðis eftir þeirri sætisröð sem þær lentu í á lokaúrtökumótinu. Sú sem varð í 65. sætinu, sænski kylfingurinn Isabelle Johansson hefir þegar verið kynnt. Næst voru kynntar þær sem deildu 61. sætinu og þær tvær sem deildu 57. sætinu, þær 7 sem deildu 50. sætinu, þær 7 (6), sem urðu T-43 og þær 6 sem urðu T-37.

Næst verða kynntar þær 4 sem deildu 33. sætinu, en þær léku allar á samtals 8 yfir pari. Þetta eru: hin spænska Marta Martin; Anna Magnusson frá Svíþjóð og dönsku kylfingarnir Line Toft Hansen og Linette Littau Durr Holmslykke. Búið er að kynna Holmslykke og Toft Hansen, en í dag verður hin sænska Anna Magnusson kynnt, en hún varð uppreiknað í 34. sætinu.

Anna Magnusson fæddist

Hún er frá Täby í Svíþjóð.

Magnusson lék í bandaríska háskólagolfinu með liði Morehead State og má sjá um afrek hennar þar með því að SMELLA HÉR: