Ragnheiður Jónsdóttir | október. 10. 2020 | 14:00

Nýju stúlkurnar á LET 2020: Filippa Moork (54/65)

Á lokahring lokaúrtökumótsins fyrir LET spila 60 efstu og þær sem jafnar eru í 60. sætinu.

Í ár voru 7 stúlkur jafnar í 59. sætinu eftir 4. hring úrtökumótsins og spiluðu því alls 65 stúlkur lokahringinn og verða allar 65 kynntar, en lokastaðan í úrtökumótinu var eftirfarandi SMELLIÐ HÉR:

Dansað var úr röðinni og hefir íslenski keppandinn, sem komst í flokk 8a, Guðrún Brá Björgvinsdóttir, þegar verið kynnt, sem og enska stúlkan Rachel Drummond, sem var meðal þeirra 7 sem rétt sluppu inn á lokahringinn.

Nú verða stúlkurnar kynntar eftirleiðis eftir þeirri sætisröð sem þær lentu í á lokaúrtökumótinu. Sú sem varð í 65. sætinu, sænski kylfingurinn Isabelle Johansson hefir þegar verið kynnt. Næst voru kynntar þær sem deildu 61. sætinu og þær tvær sem deildu 57. sætinu, þær 7 sem deildu 50. sætinu, þær 7 (6), sem urðu T-43, þær 6 sem urðu T-37 og þær 4, sem deildu 33. sætinu; þær 7 stúkur sem deildu 27. sætinu; þær tvær sem urðu T-25; þá sem varð ein í 24. sætinu og þær fjórar sem deildu 20. sætinu.

Næst verða kynntar þær 10 stúlkur sem deildu 10. sætinu þ.e. urðu T-10, en allar spiluðu þær á samtals 3 yfir pari, 364 höggum og tryggðu sér þar með öruggt sæti og fullan spilarétt á sterkustu kvenmótaröð Evrópu, Ladies European Tour (skammst: LET). Ein þessara stúlkna, Guðrún Brá Björgvinsdóttir hefir þegar verið kynnt, en kynning hennar var birt aftur. Hinar 9 sem náðu þessum glæsilega árangri að verða T-10 voru Charlotte Thomas frá Englandi; Tiia Koivisto frá Finnlandi, Eun Jung Ji frá S-Kóreu, Sophie Hausmann og Carolin Kauffmann frá Þýskalandi, Morgane Metraux frá Sviss, Filippa Moork frá Svíþjóð, Pia Babnik frá Slóveníu, en hún var jafnframt yngsti keppandinn í þessu lokaúrtökumóti og síðan hin franska Anne Charlotte Mora.

Búið er að kynna fyrstu 7 af þeim sem urðu T-10 og í dag verður sænski kylfingurinn Filippa Moork kynnt en hún varð uppreiknað í 12. sætinu.

Filippa Moork fæddist 14. maí 1997 í Sunne, Svíþjóð og er því 23 ára.

Heima í Svíþjóð er Moork í Karlstadt golfklúbbnum.

Á tímabilinu 2016-2017 stundaði Moork viðskiptafræði við University of Miami (UM).

Moork gerðist atvinnumaður í golfi 2017.

Síðan þá hefir hún sigrað þrívegis; allt á heimavelli á Swedish Golf Tour þ.e. Flommen Ladies Open (19. ágúst 2017); Tegelberga Open (6. maí 2018) og Hinton Golf Open (12. maí 2019).

Það sem tryggði henni T-10 árangur í lokaúrtökumóti LET var skor upp á 3 yfir pari, 364 högg (líkt og hjá Guðrúnu Brá) með skorið 74 75 69 74 72.