Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 26. 2020 | 14:00

Nýju stúlkurnar á LET 2020: Georgina Blackman (19/65)

Á lokahring lokaúrtökumótsins fyrir LET spila 60 efstu og þær sem jafnar eru í 60. sætinu.

Í ár voru 7 stúlkur jafnar í 59. sætinu eftir 4. hring úrtökumótsins og spiluðu því alls 65 stúlkur lokahringinn og verða allar 65 kynntar, en lokastaðan í úrtökumótinu var eftirfarandi SMELLIÐ HÉR:

Dansað var úr röðinni og íslenski keppandinn, sem komst í flokk 8a, Guðrún Brá Björgvinsdóttir þegar verið kynnt, sem og enska stúlkan Rachel Drummond, sem var meðal þeirra 7 sem rétt sluppu inn á lokahringinn.

Nú verða stúlkurnar kynntar eftirleiðis eftir þeirri sætisröð sem þær lentu í á lokaúrtökumótinu. Sú sem varð í 65. sætinu, sænski kylfingurinn Isabelle Johansson hefir þegar verið kynnt. Næst voru kynntar þær sem deildu 61. sætinu og þær tvær sem deildu 57. sætinu og þær 7 sem deildu 50. sætinu.

Næst verða kynntar þær 6 af 7 stúlkum sem urðu jafnar í 43. sæti þ.e. T-43 á samtals 10 yfir pari, 371 höggum, en þetta eru þær: Rachel Drummond (hefir þegar verið kynnt); Georgia Iziemgbe Oboh frá Nígeríu; Elía Folch frá Spáni; Ha rang Lee frá Spáni; Valentine Derrey frá Frakklandi; Madelene Stavnar frá Noregi og enski áhugamaðurinn Georgina Blackman.

Byrjað verður á Georginu Blackman, sem var uppreiknað í 49. sætinu á lokaúrtökumótinu með skor upp á (75 69 73 76 78) og spilar því ekki á Evrópumótaröð kvenna á næsta keppnistímabili.

Georgina Blackman fæddist 17. apríl 1996 í Colchester, Englandi og er því 23 ára.

Í dag býr Blackman í Essex og heima í Englandi er hún í The Melbourne Club.

Hún gerðist atvinnumaður í golfi í ár, 2020.

Sem stendur er Blackman nr. 1083 á Rolex-heimslista kvenna í golfi.