Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 28. 2020 | 14:00

Nýju stúlkurnar á LET 2020: Isabella Deilert (40/66)

Á lokahring lokaúrtökumótsins fyrir LET spila 60 efstu og þær sem jafnar eru í 60. sætinu.

Í ár voru 7 stúlkur jafnar í 59. sætinu eftir 4. hring úrtökumótsins og spiluðu því alls 65 stúlkur lokahringinn og verða allar 65 kynntar, en lokastaðan í úrtökumótinu var eftirfarandi SMELLIÐ HÉR:

Dansað var úr röðinni og hefir íslenski keppandinn, sem komst í flokk 8a, Guðrún Brá Björgvinsdóttir, þegar verið kynnt, sem og enska stúlkan Rachel Drummond, sem var meðal þeirra 7 sem rétt sluppu inn á lokahringinn.

Nú verða stúlkurnar kynntar eftirleiðis eftir þeirri sætisröð sem þær lentu í á lokaúrtökumótinu. Sú sem varð í 65. sætinu, sænski kylfingurinn Isabelle Johansson hefir þegar verið kynnt. Næst voru kynntar þær sem deildu 61. sætinu og þær tvær sem deildu 57. sætinu, þær 7 sem deildu 50. sætinu, þær 7 (6), sem urðu T-43, þær 6 sem urðu T-37 og þær 4, sem deildu 33. sætinu og þær 7 stúkur sem deildu 27 sætinu þ.e. urðu T-27.

Næst verða kynntar þær tvær stúlkur sem deildu 25. sætinu (T-25). Þetta eru þær Stefanía Avanzo og Ísabella Deilert frá Svíþjóð. Þær léku báðar á samtals 6 yfir pari, 367 högg.

Byrjað verður á því að kynna Ísabellu Deilert, en hún var uppreiknað í 26. sætinu og var skor hennar yfir keppnisdagana 5 (73 71 75 73 75).

Ísabella Deilert fæddist í Stokkhólmi í Svíþjóð, 5. júní 1994, dóttir  Arne Deilert og Gladys Dias Repetto Ísabella er því 25 ára og alveg að verða 26. Hún á einn bróður, Alexander.

Pabbi hennar var atvinnumaður í golfi og bróðirinn spilar íshokki með sænska íshokkílandsliðinu.

Ísabella hefir einnig keppt í bandy og var í sænska landsliðinu.

Í Svíþjóð var Deilert í Fredrika Bremer menntaskólanum í Stokkhólmi.

Deilert var síðan í bandaríska háskólagolfinu og lék með golfliði Oklahoma State. Sjá má um afrek hennar í bandaríska háskólagolfinu með því að SMELLA HÉR: