Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 18. 2020 | 14:00

Nýju stúlkurnar á LET 2020: Linette Littau Durr Holmslykke (30/65)

Á lokahring lokaúrtökumótsins fyrir LET spila 60 efstu og þær sem jafnar eru í 60. sætinu.

Í ár voru 7 stúlkur jafnar í 59. sætinu eftir 4. hring úrtökumótsins og spiluðu því alls 65 stúlkur lokahringinn og verða allar 65 kynntar, en lokastaðan í úrtökumótinu var eftirfarandi SMELLIÐ HÉR:

Dansað var úr röðinni og íslenski keppandinn, sem komst í flokk 8a, Guðrún Brá Björgvinsdóttir þegar verið kynnt, sem og enska stúlkan Rachel Drummond, sem var meðal þeirra 7 sem rétt sluppu inn á lokahringinn.

Nú verða stúlkurnar kynntar eftirleiðis eftir þeirri sætisröð sem þær lentu í á lokaúrtökumótinu. Sú sem varð í 65. sætinu, sænski kylfingurinn Isabelle Johansson hefir þegar verið kynnt. Næst voru kynntar þær sem deildu 61. sætinu og þær tvær sem deildu 57. sætinu, þær 7 sem deildu 50. sætinu, þær 7 (6), sem urðu T-43 og þær 6 sem urðu T-37.

Næst verða kynntar þær 4 sem deildu 33. sætinu, en þær léku allar á samtals 8 yfir pari.  Þetta eru: hin spænska Marta Martin; Anna Magnusson frá Svíþjóð og dönsku kylfingarnir  Line Toft Hansen og Linette Littau Durr Holmslykke. Byrjað verður á því að kynna Holmslykke en hún varð uppreiknað í 36. sætinu.

Linette Littau Durr Holmslykke fæddist 4. ágúst 1995 og er því 24 ára; dóttir Brian Holmslykke og Lene Littau. Hún er frá Vejle í Danmörku.

Holmslykke spilaði í bandaríska háskólagolfinu með liði Murray State University í Kentucky og útskrifaðist þaðan með gráðu í fjármálafræði.  Sjá má um afrek Holmslykke með MSU með því að SMELLA HÉR: 

Holmslykke er sundkennari en hún hefir keppt í sundi.

Í golfinu er  Holmslykke er e.t.v. þekktust fyrir að hafa farið holu í höggi á Australian Ladies Classic, í febrúar sl. en sjá má frábæran ás hennar með því að SMELLA HÉR: