Ragnheiður Jónsdóttir | október. 28. 2020 | 14:00

Nýju stúlkurnar á LET 2020: Maiken Bing Poulsen (60/65)

Á lokahring lokaúrtökumótsins fyrir LET spila 60 efstu og þær sem jafnar eru í 60. sætinu.

Í ár voru 7 stúlkur jafnar í 59. sætinu eftir 4. hring úrtökumótsins og spiluðu því alls 65 stúlkur lokahringinn og verða allar 65 kynntar, en lokastaðan í úrtökumótinu var eftirfarandi SMELLIÐ HÉR:

Dansað var úr röðinni og hefir íslenski keppandinn, sem komst í flokk 8a, Guðrún Brá Björgvinsdóttir, þegar verið kynnt, sem og enska stúlkan Rachel Drummond, sem var meðal þeirra 7 sem rétt sluppu inn á lokahringinn.

Nú verða stúlkurnar kynntar eftirleiðis eftir þeirri sætisröð sem þær lentu í á lokaúrtökumótinu. Sú sem varð í 65. sætinu, sænski kylfingurinn Isabelle Johansson hefir þegar verið kynnt. Næst voru kynntar þær sem deildu 61. sætinu og þær tvær sem deildu 57. sætinu, þær 7 sem deildu 50. sætinu, þær 7 (6), sem urðu T-43, þær 6 sem urðu T-37 og þær 4, sem deildu 33. sætinu; þær 7 stúkur sem deildu 27. sætinu; þær tvær sem urðu T-25; þá sem varð ein í 24. sætinu; þær fjórar sem deildu 20. sætinu; þær 10 stúlkur sem voru T-10; loks þær tvær sem urðu T-8 og þýski kylfingurinn Sarina Schmidt, sem var ein í 7. sætinu

Næst verður kynnt sú stúlks sem varð í 6. sæti á lokaúrtökumótinu en það var Maiken Bing Poulsen. Hún lék á samtals á sléttu pari, 361 höggum (74 75 69 72 71)vog tryggði sér þar með öruggt sæti og fullan spilarétt á sterkustu kvenmótaröð Evrópu, Ladies European Tour (skammst: LET).

Maiken Bing Poulsen fæddist 28. desember 1996 í Osló, Noregi og er því 24 ára – Hún á því sama afmælisdag og þýski kylfingurinn Martin Kaymer.

Heima í Noregi er hún í golfklúbbnum í Drammen.

Maiken gerðist atvinnumaður í golfi 2019.

Maiken sigraði á fyrsta LET mótinu sínu nýliðaár sitt á LET, en sigurinn kom  á Flumserberg Ladies Open í Golf Gams, í Sviss.

Fræðast má nánar um Maiken Bing Poulsen á heimasíðu hennar með því að SMELLA HÉR: