Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 5. 2020 | 14:00

Nýju stúlkurnar á LET 2020: Manon Gidali (45/65)

Á lokahring lokaúrtökumótsins fyrir LET spila 60 efstu og þær sem jafnar eru í 60. sætinu.

Í ár voru 7 stúlkur jafnar í 59. sætinu eftir 4. hring úrtökumótsins og spiluðu því alls 65 stúlkur lokahringinn og verða allar 65 kynntar, en lokastaðan í úrtökumótinu var eftirfarandi SMELLIÐ HÉR:

Dansað var úr röðinni og hefir íslenski keppandinn, sem komst í flokk 8a, Guðrún Brá Björgvinsdóttir, þegar verið kynnt, sem og enska stúlkan Rachel Drummond, sem var meðal þeirra 7 sem rétt sluppu inn á lokahringinn.

Nú verða stúlkurnar kynntar eftirleiðis eftir þeirri sætisröð sem þær lentu í á lokaúrtökumótinu. Sú sem varð í 65. sætinu, sænski kylfingurinn Isabelle Johansson hefir þegar verið kynnt. Næst voru kynntar þær sem deildu 61. sætinu og þær tvær sem deildu 57. sætinu, þær 7 sem deildu 50. sætinu, þær 7 (6), sem urðu T-43, þær 6 sem urðu T-37 og þær 4, sem deildu 33. sætinu; þær 7 stúkur sem deildu 27 sætinu; þær tvær sem urðu T-25 og þá sem varð ein í 24. sætinu.

Næst verða kynntar þær tvær sem urðu T-20 en það eru spænski kylfingurinn Mireia Prat, Leonie Harm frá Þýskalandi; Manon Gidali frá Frakklandi og Monique Smit frá S-Afríku. Þær léku allar á samtals 4 yfir pari.

Prat og Harm hafa þegar verið kynntar og í dag er það Manon Gidali, sem verður kynnt, en hún varð uppreiknað í 21. sætinu og því aðeins 1 sárgrætilegu sæti frá öruggu sæti á LET.

Manon Gidali fæddist 15. október 1993, í París, dóttir hjónanna Olivier og Severine Gidali og er því 26 ára.

Hún var í Notre Dame de Boulogne menntaskólanum og lék síðan í bandaríska háskólagolfinu með liði University of Arizona.

Gidali hefir keppt í golfi í 16 ár; var m.a. í liði Frakklands í the European Team Champions; var franskur  U-18 meistari, var í 2. sæti í the European Championships og keppti til úrslita í the Esmond Cup.

Hún útskrifaðist fyrir 5 árum frá Arizona háskóla, þ.e. 2015.

Gidali gerðist atvinnumaður í golfi 2016 og hefir frá þeim tíma spilað á LET Access.

Ein hefir hún m.a. spilað á Sólskinstúrnum suður-afríska og á einstaka LET móti frá árinu 2018.

Besti árangur hennar á sl. 3 árum er T-4 á South African Women’s Open sem fram fór 12.-14. mars 2020 í S-Afríku, en það var mót sem Sólskinstúrinn og LET stóðu sameiginlega að.

Gidali á kærasta og tvo ketti, Sherlock og Watson.