Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 3. 2020 | 14:00

Nýju stúlkurnar á LET 2020: Marta Martin (33/65)

Á lokahring lokaúrtökumótsins fyrir LET spila 60 efstu og þær sem jafnar eru í 60. sætinu.

Í ár voru 7 stúlkur jafnar í 59. sætinu eftir 4. hring úrtökumótsins og spiluðu því alls 65 stúlkur lokahringinn og verða allar 65 kynntar, en lokastaðan í úrtökumótinu var eftirfarandi SMELLIÐ HÉR:

Dansað var úr röðinni og íslenski keppandinn, sem komst í flokk 8a, Guðrún Brá Björgvinsdóttir þegar verið kynnt, sem og enska stúlkan Rachel Drummond, sem var meðal þeirra 7 sem rétt sluppu inn á lokahringinn.

Nú verða stúlkurnar kynntar eftirleiðis eftir þeirri sætisröð sem þær lentu í á lokaúrtökumótinu. Sú sem varð í 65. sætinu, sænski kylfingurinn Isabelle Johansson hefir þegar verið kynnt. Næst voru kynntar þær sem deildu 61. sætinu og þær tvær sem deildu 57. sætinu, þær 7 sem deildu 50. sætinu, þær 7 (6), sem urðu T-43 og þær 6 sem urðu T-37.

Næst verða kynntar þær 4 sem deildu 33. sætinu, en þær léku allar á samtals 8 yfir pari. Þetta eru: hin spænska Marta Martin; Anna Magnusson frá Svíþjóð og dönsku kylfingarnir Line Toft Hansen og Linette Littau Durr Holmslykke. Allar nema Marta Martin hafa verið kynntar, en  hún varð uppreiknað í 33. sætinu.

Marta Martin fæddist 30. júní 1996 og er því 23 ára. Hún er dóttir Manuelu og Fernando Martin.

Martin spilaði í bandaríska háskólagolfinu með golfliði Purdue háskóla og má sjá um afrek hennar þar með því að SMELLA HÉR:  

Hún útskrifaðist í fyrra og var því að reyna fyrir sér á LET í fyrsta skipti eftir útskrift í lokaúrtökumótinu.

í Purdue lagði hún stund á grasvallarfræði (ens.: turf management and science).

Eftir útskrift frá Purdue hefir Martin spilað í 2. deildinni í Bandaríkjunum þ.e. Symetra Tour. Á keppnistímabilinu 2019 spilaði hún í 12 mótum, en komst aðeins í gegnum niðurskurð 3 sinnum.

Hún reyndi því fyrir sér í Evrópu, en gekk litlu skár þar og fær fyrir árangur sinn í lokaúrtökumóti LET væntanlega aðeins takmarkaðan spilarétt á LET og nokkur mót á LET Access.

Martin hefir verið í golflandsliði Spánar.