Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 17. 2020 | 14:00

Nýju stúlkurnar á LET 2020: Mimmi Bergman (29/65)

Á lokahring lokaúrtökumótsins fyrir LET spila 60 efstu og þær sem jafnar eru í 60. sætinu.

Í ár voru 7 stúlkur jafnar í 59. sætinu eftir 4. hring úrtökumótsins og spiluðu því alls 65 stúlkur lokahringinn og verða allar 65 kynntar, en lokastaðan í úrtökumótinu var eftirfarandi SMELLIÐ HÉR:

Dansað var úr röðinni og íslenski keppandinn, sem komst í flokk 8a, Guðrún Brá Björgvinsdóttir þegar verið kynnt, sem og enska stúlkan Rachel Drummond, sem var meðal þeirra 7 sem rétt sluppu inn á lokahringinn.

Nú verða stúlkurnar kynntar eftirleiðis eftir þeirri sætisröð sem þær lentu í á lokaúrtökumótinu. Sú sem varð í 65. sætinu, sænski kylfingurinn Isabelle Johansson hefir þegar verið kynnt. Næst voru kynntar þær sem deildu 61. sætinu og þær tvær sem deildu 57. sætinu, þær 7 sem deildu 50. sætinu og þær 7 (6), sem urðu T-43.

Næst verða kynntar þær 6 stúlkur sem deildu 37. sætinu (þ.e. urðu T-37 á lokaúrtökumótinu) en það voru: sænsku kylfingarnir Mimmi Bergman, Annelie Sjöholm og My Leander; Anäis Maggetti frá Sviss; enski kylfingurinn Inci Mehmet og Franziska Friedrich frá Þýskalandi. Þær léku allar hringina 5 á samtals 9 yfir pari, 370 höggum.

Aðeins á eftir að kynna Mimmi Bergman og verður það gert í dag.  Bergman varð uppreiknað í 37. sætinu á lokaúrtökumótinu og mun því aðallega spila á LET Access.

Mimmi Bergman fæddist 6. júlí 1997 og er því 22 ára.

Í Svíþjóð er hún í Lannalodge golfklúbbnum.

Bergman hefir þrívegis tekið þátt í South African Women’s Open í S-Afríku, þ.e. 2018-2020, sem er mót bæði á suður-afríska Sólskinstúrnum og LET.