Nýju stúlkurnar á LET 2020: Magdalena Simmermacher (64/65)
Á lokahring lokaúrtökumótsins fyrir LET spila 60 efstu og þær sem jafnar eru í 60. sætinu.
Í ár voru 7 stúlkur jafnar í 59. sætinu eftir 4. hring úrtökumótsins og spiluðu því alls 65 stúlkur lokahringinn og verða allar 65 kynntar, en lokastaðan í úrtökumótinu var eftirfarandi SMELLIÐ HÉR:
Dansað var úr röðinni og hefir íslenski keppandinn, sem komst í flokk 8a, Guðrún Brá Björgvinsdóttir, þegar verið kynnt, sem og enska stúlkan Rachel Drummond, sem var meðal þeirra 7 sem rétt sluppu inn á lokahringinn.
Nú verða stúlkurnar kynntar eftirleiðis eftir þeirri sætisröð sem þær lentu í á lokaúrtökumótinu. Sú sem varð í 65. sætinu, sænski kylfingurinn Isabelle Johansson hefir þegar verið kynnt. Næst voru kynntar þær sem deildu 61. sætinu og þær tvær sem deildu 57. sætinu, þær 7 sem deildu 50. sætinu, þær 7 (6), sem urðu T-43, þær 6 sem urðu T-37 og þær 4, sem deildu 33. sætinu; þær 7 stúkur sem deildu 27. sætinu; þær tvær sem urðu T-25; þá sem varð ein í 24. sætinu; þær fjórar sem deildu 20. sætinu; þær 10 stúlkur sem voru T-10; loks þær tvær sem urðu T-8; þýski kylfingurinn Sarina Schmidt, sem var ein í 7. sætinu og norski kylfingurinn Maiken Bing Poulsen, sem var ein í 6. sætinu og Alice Hewson frá Englandi, sem var ein í 5. sætinu.
Nú á bara eftir að kynna þær sem urðu í 4 efstu sætunum og var byrjað á þeirri sem hafnaði einmitt ein í 4. sætinu en það er svissneski kylfingurinn Kim Metraux. Nú verða þær kynntar, sem urðu í 2. sætinu en það er skoski áhugamaðurinn Alison Muirhead og Magdalena Simmermacher, frá Argentínu. Þær léku báðar á samtals 7 undir pari, hvor. Alison hefir þegar verið kynnt og í dag er það Magdalena Simmermacher en hún var uppreiknað í 2. sætinu.
Magdalena Simmermacher fæddist 23. mars 1996 í Buenos Aires, Argentínu og er því 24 ára.
Hún var í bandaríska háskólagolfinu á árunum 2014-2018 við Old Dominion, þaðan sem hún útskrifaðist með gráðu í alþjóðaviðskiptum 2018.
Árið 2019 gerðist Simmermacher atvinnumaður í golfi og komst strax inn á LET með þessum líka glæsibrag – T-2 árangri í lokaúrtökumótinu!!!
Fræðast má nánar um Simmermacher á félagsmiðlum hennar Twitter – Sjá með því að SMELLA HÉR:
og Instagram – Sjá með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024