Louise Markvardsen
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 20. 2020 | 14:00

Nýju stúlkurnar á LET 2020: Louise Markvardsen (15/65)

Á lokahring lokaúrtökumótsins fyrir LET spila 60 efstu og þær sem jafnar eru í 60. sætinu.

Í ár voru 7 stúlkur jafnar í 59. sætinu eftir 4. hring úrtökumótsins og spiluðu því alls 65 stúlkur lokahringinn og verða allar 65 kynntar, en lokastaðan í úrtökumótinu var eftirfarandi SMELLIÐ HÉR:

Dansað var úr röðinni og íslenski keppandinn, sem komst í flokk 8a, Guðrún Brá Björgvinsdóttir þegar verið kynnt, sem og enska stúlkan Rachel Drummond, sem var meðal þeirra 7 sem rétt sluppu inn á lokahringinn.

Nú verða stúlkurnar kynntar eftirleiðis eftir þeirri sætisröð sem þær lentu í á lokaúrtökumótinu. Sú sem varð í 65. sætinu, sænski kylfingurinn Isabelle Johansson hefir þegar verið kynnt. Næst voru kynntar þær sem deildu 61. sætinuog þær tvær sem deildu 57. sætinu, en þær spiluðu báðar á 12 yfir pari, 373 höggum

Næst verða kynntar þær 7 stúlkur sem urðu jafnar í 50. sæti þ.e. T-50 á samtals 11 yfir pari, 372 höggum, en þetta eru þær: Emelie Borggren frá Svíþjóð; Greta Isabella Voelker frá Þýskalandi indverski kylfingurinn Sharmila Nicolett; Louise Markvardsen frá Danmörku; enski kylfingurinn Sophie Keech, Justine Dreher frá Frakklandi og Ainil Bakar frá Malasíu.

Ainil Bakar, Justine Dreher og Sophie Keech hafa verið kynntar og í dag er röðin komin að danska kylfingnum Louise Markvardsen.  Markvardsen var uppreiknað í 53. sætinu á lokaúrtökumótinu

Louise Marvardsen fæddist 22. júní 1997 og er því 22 ára.

Hún á föður sem er 56 ára, móður 55 ára og eina eldri systur sem er 3 árum eldri en hún.

Louise byrjaði að spila golf fyrir 12 árum síðan, þegar hún var 10 ára.

Mesti áhrifavaldurinn í golfi hennar er pabbi hennar.

Louise býr í Værløse, Danmörku og er í Smørum golfklúbbnum, en í nafni klúbbsins hefir hún bæði keppt sem einstaklingur og í liðakeppnum.

Á heimslista áhugamanna náði Louise hæst að vera í 494. sæti.

Hún útskrifaðist úr grunnskóla, Lille Værløse Skole 16 ára, og keppti m.a. í golfi í Búlgaríu 15 ára.

Eftir útskrift hefur hún einbeitt sér að golfleik sínum og námskeiðum sem bæta hann. Eins var hún í námi í viðskiptaskóla í Lyngby (dan.: Handelsskolen Nord, Lyngby).

Meðal hápunkta á stuttum ferli hennar mætti geta eftirfarandi:

Hún varð Evrópumeistari klúbbliða með Smørum , 2019
Louise er Danmerkurmeistari í höggleik 2019
Hún tók þátt í European Nations Cup – Copa Sotogrande, 2019
Hún tók þátt í Hoya Open Swedish Golf Tour, 2019

Louise gerðist atvinnumaður í golfi 10. desember 2019.

Sjá má heimasíðu Louise Markvardsen til þess að fræðast nánar um þennan áhugaverða danska kylfing með því að SMELLA HÉR: