Nýju stúlkurnar á LPGA 2019: Jennifer Kupcho (57/58)
Hér verða líkt og á undanförnum árum kynntar þær stúlkur sem hlutu kortin sín á LPGA fyrir 2019 keppnistímabilið. Þetta eru þær sem urðu í 45. sæti eða voru jafnar í 45. sæti á lokaúrtökumóti LPGA og efstu 10 á peningalista 2. deildarinnar þ.e. Symetra Tour.
Í ár voru 48 stúlkur sem komust á LPGA gegnum lokaúrtökumótið og síðan einnig þær 10, sem efstar urðu á peningalista Symetra Tour eða alls 58 stúlkur.
Hér hafa 10 efstu á peningalista Symetra Tour verið kynntar sem og þær sem jafnar voru í 45. sætinu á lokaúrtökumóti LPGA, en það eru þær Karen Chung, frá Bandaríkjunum; P.K. Kongkraphan frá Thaílandi; Louise Strahle frá Svíþjóð og Robyn Choi frá Ástralíu.
Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir tók þátt í lokaúrtökumóti LPGA en varð ekki meðal efstu 45 og náði því ekki að endurnýja kortið sitt og fastan keppnisrétt á LPGA næsta keppnistímabil.
Það voru 6 stúlkur, sem deildu 39. sætinu og hafa þær einnig verið kynntar en það eru: Lee Lopez, Sandra Changkija, Lauren Coughlin og Stephanie Kono frá Bandaríkjunum; Pajaree Anannarukarn frá Thaílandi og Guilia Molinaro frá Ítalíu. Þessar 6 léku allar á samtals 9 yfir pari á lokaúrtökumótinu, hver. Síðan hafa þær sem deildu 36. sætinu verið kynntar en það eru: Suzuka Yamaguchi frá Japan; Louise Ridderström frá Svíþjóð og Sophia Popov frá Þýskalandi, en þær léku á samtals 8 yfir pari. Eins hafa þær 3 verið kynntar sem deildu 33. sætinu og léku á samtals 7 yfir pari en það eru Dori Carter og Lori Beth Adams frá Bandaríkjunum og Laetitia Beck frá Ísrael og sú sem var ein í 32. sætinu og lék á samtals 6 yfir pari, en það er María Fassi, frá Mexíkó.
Þær stúlkur sem deildu 27. sætinu á samtals 5 yfir pari voru Kristy McPherson, Cheyenne Knight, Sara Burnham og Lilia Vu frá Bandaríkjunum og Lily Muni He frá Kína. Síðan deildu 4 23. sæti á samtals 4 yfir pari hver, þ.e. þær Gemma Dryburgh, frá Skotlandi; Jing Yan og Xiyu Lin frá Kína og Lauren Kim frá Bandaríkjunum. Þær hafa allar verið kynntar.
Þrjár stúlkur deildu 20. sætinu, allar á samtals 3 yfir pari en það voru: Maddie McCrary, og Alana Uriell frá Bandaríkjunum og Jenny Haglund frá Svíþjóð.
Þær, sem deildu 15. sætinu, allar á samtals 2 yfir pari, voru: Alison Lee, Clariss Guce og Katie Burnett, frá Bandaríkjunum, hin hollenska Anne Van Dam og Tiffany Chan frá Hong Kong. Þær hafa allar verið kynntar ásamt Kristen Gillman og Youngin Chun frá frá Bandaríkjunum sem deildu 13. sætinu, allar á samtals 1 yfir pari, hver.
Það voru danska stúlkan Nanna Koertz Madsen og Kim Kaufmann frá Bandaríkjunum, sem deildu 11. sætinu, en báðar léku á samtals 2 undir pari. Becca Huffer varð ein í 10. sæti, en hún lék á samtals 3 undir pari. Allar framangreindar hafa verið kynntar.
Það voru kanadíski kylfingurinn Anne-Catherine Tanguay og bandaríski kylfingurinn Lauren Stephenson, sem deildu 8. sætinu en báðar léku þær á samtals 4 undir pari, á lokaúrtökumótinu, hvor. Í 7. sæti varð Jackie Stoelting, sem lék hringina 6 á samtals 6 undir pari og í 6. sæti varð kanadíska stúlkan Jaclyn Lee, en hún lék á samtals 7 undir pari.
Nú á bara eftir að kynna þær sem urðu í 2 efstu sætunum; Mel Reid, sem hafnaði í 5. sæti á 8 undir pari hefir verið kynnt og eins Klara Spilková, frá Tékklandi, sem varð í 4. sæti á samtals 11 undir pari og hin bandaríska Sarah Schmelzel sem varð í 3. sæti á lokaúrtökumótinu á samtals 14 undir pari.
Í dag verður sú kynnt sem hafnaði í 2. sæti á lokaúrtökumótinu, Jennifer Kupcho, en hún spilaði 6 hringi lokaúrtökumótsins, á samtals 17 undir pari.
Jennifer Kupcho er 21 árs frá Westminster í Colorado. Hún er fædd 14. maí 1997.
Hún er efstubekkingur í Wake Forest University, þar sem Ólafía Þórunn var við nám. Sjá má árangur Kupcho í bandaríska háskólagolfinu með því að SMELLA HÉR:
Jennifer Kupcho ætlar ekki að taka strax þátt í LPGA heldur ljúka námi sínu í Wake Forest fyrst nú í vor og fær síðan að spila á næsta tímabili.
Hún vann NCAA individual championship title 2018.
Kupcho spilaði bæði í U.S. Curtis Cup g Palmer Cup 2018 og er litið á hana sem mikið efni.
Áður en hún náði 2. sætinu á lokaúrtökumótinu hafði Kupcho spilað þrívegis á LPGA og náði góðum árangri í tveimur þeirra þ.e. varð T-17 á Opna bandaríska kvenrisamótinu 2017 og varð T-16 á Marathon Classic.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024