Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 7. 2019 | 10:00

Nýju stúlkurnar á LPGA 2019: Lilia Vu (30/58)

Hér verða líkt og á undanförnum árum kynntar þær stúlkur sem hlutu kortin sín á LPGA fyrir 2019 keppnistímabilið. Þetta eru þær sem urðu í 45. sæti eða voru jafnar í 45. sæti á lokaúrtökumóti LPGA og efstu 10 á peningalista 2. deildarinnar þ.e. Symetra Tour.

Í ár voru 48 stúlkur sem komust á LPGA gegnum lokaúrtökumótið og síðan einnig þær 10, sem efstar urðu á peningalista Symetra Tour eða alls 58 stúlkur.

Hér hafa 10 efstu á peningalista Symetra Tour verið kynntar sem og þær sem jafnar voru í 45. sætinu á lokaúrtökumóti LPGA, en það eru þær Karen Chung, frá Bandaríkjunum; P.K. Kongkraphan frá Thaílandi; Louise Strahle frá Svíþjóð og Robyn Choi frá Ástralíu.

Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir tók þátt í lokaúrtökumóti LPGA en varð ekki meðal efstu 45 og náði því ekki að endurnýja kortið sitt og fastan keppnisrétt á LPGA næsta keppnistímabil.

Það voru 6 stúlkur, sem deildu 39. sætinu og hafa þær einnig verið kynntar en það eru: Lee Lopez, Sandra Changkija, Lauren Coughlin og Stephanie Kono frá Bandaríkjunum; Pajaree Anannarukarn frá Thaílandi og Guilia Molinaro frá Ítalíu. Þessar 6 léku allar á samtals 9 yfir pari á lokaúrtökumótinu, hver. Síðan hafa þær sem deildu 36. sætinu verið kynntar en það eru: Suzuka Yamaguchi frá Japan; Louise Ridderström frá Svíþjóð og Sophia Popov frá Þýskalandi, en þær léku á samtals 8 yfir pari. Eins hafa þær 3 verið kynntar sem deildu 33. sætinu og léku á samtals 7 yfir pari en það eru Dori Carter og Lori Beth Adams frá Bandaríkjunum og Laetitia Beck frá Ísrael og sú sem var ein í 32. sætinu og lék á samtals 6 yfir pari, en það er María Fassi, frá Mexíkó.

Í dag verður hafist handa við að kynna þær stúlkur sem deildu 27. sætinu og léku állar á samtals 5 yfir pari, en það eru: Kristy McPherson, Cheyenne Knight, Sara Burnham og Lilia Vu frá Bandaríkjunum og Muni He frá Kína.

Kristy McPherson og Lily Muni He hafa þegar verið kynntar og í dag er það Lilia Vu frá Bandaríkjunum

Lilia Vu fæddist 14. október 1997 í Fountain Valley, Kaliforníu og er því 21 árs.

Hún er ekki há í loftinu, aðeins 1,63 m á hæð.

Hún lék í bandaríska háskólagolfinu með liði UCLA.

Meðan hún var í liði UCLA vann hún 8 sinnum einstaklingskeppnir, sem er það mesta í sögu kvennaliðs UCLA.

Meðan hún var UCLA Bruin var hún valin PING WGCA leikmaður ársins 2018, Pac-1 Conference leikmaður ársin og eins var hún meðal þeirra sem tilnefnd voru til Honda Award. Annar heiður sem henni hlotnaðist á háskólaárunum var að verða þrefaldur WGCA First Team All-American og All-Pac 12 performer.

Vu var í sigurliði Bandaríkjanna í Curtis Cup 2018 (þar sem hún halaði inn 4 stig) og eins var hún í liði Bandaríkjanna í Arnold Palmer Cup og í USA World Amateur liðunum.

Hún komst á LPGA í fyrstu tilraun og 2019 er nýliðaár hennar á mótaröðinni.