Louisa Ridderström
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 24. 2019 | 10:00

Nýju stúlkurnar á LPGA 2019: Louise Ridderström (21/58)

Hér verða líkt og á undanförnum árum kynntar þær stúlkur sem hlutu kortin sín á LPGA fyrir 2019 keppnistímabilið. Þetta eru þær sem urðu í 45. sæti eða voru jafnar í 45. sæti á lokaúrtökumóti LPGA og efstu 10 á peningalista 2. deildarinnar þ.e. Symetra Tour.

Í ár voru 48 stúlkur sem komust á LPGA gegnum lokaúrtökumótið og síðan einnig þær 10, sem efstar urðu á peningalista Symetra Tour eða alls 58 stúlkur.

Hér hafa 10 efstu á peningalista Symetra Tour verið kynntar sem og þær sem jafnar voru í 45. sætinu á lokaúrtökumóti LPGA, en það eru þær Karen Chung, frá Bandaríkjunum; P.K. Kongkraphan frá Thaílandi; Louise Strahle frá Svíþjóð og Robyn Choi frá Ástralíu.

Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir tók þátt í lokaúrtökumóti LPGA en varð ekki meðal efstu 45 og náði því ekki að endurnýja kortið sitt og fastan keppnisrétt á LPGA næsta keppnistímabil.

Það voru 6 stúlkur, sem deildu 39. sætinu og hafa þær einnig verið kynntar en það eru: Lee Lopez, Sandra Changkija, Lauren Coughlin og Stephanie Kono frá Bandaríkjunum; Pajaree Anannarukarn frá Thaílandi og Guilia Molinaro frá Ítalíu. Þessar 6 léku allar á samtals 9 yfir pari á lokaúrtökumótinu, hver.

Í dag verður byrjað að kynna þær sem deildu 36. sætinu en það eru: Suzuka Yamaguchi frá Japan; Louise Ridderström frá Svíþjóð og Sophiu Popov frá Þýskalandi. Þær léku allar á samtals 8 yfir pari, hver.

Byrjað verður á Louisu Ridderström.

Louisa Ridderström

Louise Ridderström fæddist í Stokkhólmi 24. desember 1993 og er því 25 ára.

Hún er dóttir Helena og Lars Ridderström … en móðir hennar var í fimleikum og faðir var í sænska landsliðinu í íshokkí. Louisa á eina yngri sistur, Linneu.

Í Svíþjóð er Louise í Golfklúbbi Stokkhólms og hún var í Danderyd menntaskólanum og spilaði þar golf og leiddi lið sitt til þess að verða golfmeistari menntaskólaliða ásamt Pontus Widegren.

Louise spilaði með liði UCLA í bandaríska háskólagolfinu.

Uppáhaldsíþróttamenn Louisu eru svissneski tennisspilarinn Roger Federer og sænska kvengolfgoðsögnin Annika Sörenstam.

Louisa útskrifaðist frá UCLA með gráðu í alþjóða þróunarfræðum (international develpment studies).