Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 22. 2018 | 10:00

Nýju stúlkurnar á LPGA 2019: Robyn Choi (14/58)

Hér verða líkt og á undanförnum árum kynntar þær stúlkur sem hlutu kortin sín á LPGA fyrir 2019 keppnistímabilið. Þetta eru þær sem urðu í 45. sæti eða voru jafnar í 45. sæti á lokaúrtökumóti LPGA og efstu 10 á peningalista 2. deildarinnar þ.e. Symetra Tour.

Í ár voru 48 stúlkur sem komust á LPGA gegnum lokaúrtökumótið og síðan einnig þær 10, sem efstar urðu á peningalista Symetra Tour eða alls 58 stúlkur.

Hér hafa 10 efstu á peningalista Symetra Tour verið kynntar og í dag verður hafist á að kynna 45 efstu og þær sem jafnar voru í 45. sætinu á lokaúrtökumóti LPGA.

Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir tók þátt í lokaúrtökumóti LPGA en varð ekki meðal efstu 45 og náði því ekki að endurnýja kortið sitt og fastan keppnisrétt á LPGA næsta keppnistímabil.

Það voru 4 stúlkur sem rétt komust á LPGA með fullan spilarétt: Karen Chung, frá Bandaríkjunum; P.K. Kongkraphan frá Thaílandi og Louise Strahle frá Svíþjóð. Þær hafa þegar verið kynntar og í dag er röðin komin að að fjórðu og síðustu stúlkunni sem rétt komst inn á LPGA en það er Robyn Choi frá Ástralíu.

Robyn Choi fæddist í Sydney, Ástralíu 17. mars 1998 og er því aðeins 20 ára.

Robyn er dóttir hjónanna Nak og Soo Jin Choi og á eitt systkini Ria.

Hún lék í bandaríska háskólagolfinu með liði University of Colorado og má sjá afrek hennar með liðinu þar með því að SMELLA HÉR: 

Choi leggur stund á sálfræði í háskólanámi sínu og er mikill námsmaður er með meðaleinunn hærra en 3.

Hún er meðal þeirra yngstu sem komust á LPGA, náði inn í fyrstu tilraun og er spáð miklum frama.

Meðal áhugamála Choi er að hlusta á tónlist.