Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 21. 2019 | 10:00

Nýju stúlkurnar á LPGA 2019: Sarah Schmelzel (56/58)

Hér verða líkt og á undanförnum árum kynntar þær stúlkur sem hlutu kortin sín á LPGA fyrir 2019 keppnistímabilið. Þetta eru þær sem urðu í 45. sæti eða voru jafnar í 45. sæti á lokaúrtökumóti LPGA og efstu 10 á peningalista 2. deildarinnar þ.e. Symetra Tour.

Í ár voru 48 stúlkur sem komust á LPGA gegnum lokaúrtökumótið og síðan einnig þær 10, sem efstar urðu á peningalista Symetra Tour eða alls 58 stúlkur.

Hér hafa 10 efstu á peningalista Symetra Tour verið kynntar sem og þær sem jafnar voru í 45. sætinu á lokaúrtökumóti LPGA, en það eru þær Karen Chung, frá Bandaríkjunum; P.K. Kongkraphan frá Thaílandi; Louise Strahle frá Svíþjóð og Robyn Choi frá Ástralíu.

Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir tók þátt í lokaúrtökumóti LPGA en varð ekki meðal efstu 45 og náði því ekki að endurnýja kortið sitt og fastan keppnisrétt á LPGA næsta keppnistímabil.

Það voru 6 stúlkur, sem deildu 39. sætinu og hafa þær einnig verið kynntar en það eru: Lee Lopez, Sandra Changkija, Lauren Coughlin og Stephanie Kono frá Bandaríkjunum; Pajaree Anannarukarn frá Thaílandi og Guilia Molinaro frá Ítalíu. Þessar 6 léku allar á samtals 9 yfir pari á lokaúrtökumótinu, hver. Síðan hafa þær sem deildu 36. sætinu verið kynntar en það eru: Suzuka Yamaguchi frá Japan; Louise Ridderström frá Svíþjóð og Sophia Popov frá Þýskalandi, en þær léku á samtals 8 yfir pari. Eins hafa þær 3 verið kynntar sem deildu 33. sætinu og léku á samtals 7 yfir pari en það eru Dori Carter og Lori Beth Adams frá Bandaríkjunum og Laetitia Beck frá Ísrael og sú sem var ein í 32. sætinu og lék á samtals 6 yfir pari, en það er María Fassi, frá Mexíkó.

Þær stúlkur sem deildu 27. sætinu á samtals 5 yfir pari voru Kristy McPherson, Cheyenne Knight, Sara Burnham og Lilia Vu frá Bandaríkjunum og Lily Muni He frá Kína. Síðan deildu 4 23. sæti á samtals 4 yfir pari hver, þ.e. þær Gemma Dryburgh, frá Skotlandi; Jing Yan og Xiyu Lin frá Kína og Lauren Kim frá Bandaríkjunum. Þær hafa allar verið kynntar.

Þrjár stúlkur deildu 20. sætinu, allar á samtals 3 yfir pari en það voru: Maddie McCrary, og Alana Uriell frá Bandaríkjunum og Jenny Haglund frá Svíþjóð.

Þær, sem deildu 15. sætinu, allar á samtals 2 yfir pari, voru: Alison Lee, Clariss Guce og Katie Burnett, frá Bandaríkjunum, hin hollenska Anne Van Dam og Tiffany Chan frá Hong Kong. Þær hafa allar verið kynntar ásamt Kristen Gillman og Youngin Chun frá frá Bandaríkjunum sem deildu 13. sætinu, allar á samtals 1 yfir pari, hver.

Það voru danska stúlkan Nanna Koertz Madsen og Kim Kaufmann frá Bandaríkjunum, sem deildu 11. sætinu, en báðar léku á samtals 2 undir pari. Becca Huffer varð ein í 10. sæti, en hún lék á samtals 3 undir pari. Allar framangreindar hafa verið kynntar.

Það voru kanadíski kylfingurinn Anne-Catherine Tanguay og bandaríski kylfingurinn Lauren Stephenson, sem deildu 8. sætinu en báðar léku þær á samtals 4 undir pari, á lokaúrtökumótinu, hvor. Í 7. sæti varð Jackie Stoelting, sem lék hringina 6 á samtals 6 undir pari og í 6. sæti varð kanadíska stúlkan Jaclyn Lee, en hún lék á samtals 7 undir pari.

Nú á bara eftir að kynna þær sem urðu í 3 efstu sætunum; Mel Reid, sem hafnaði í 5. sæti á 8 undir pari hefir verið kynnt og eins Klara Spilková, frá Tékklandi, sem varð í 4. sæti á samtals 11 undir pari.

Í dag verður Sarah Schmelzel kynnt, en hún varð í 3. sæti á lokaúrtökumótinu á samtals 14 undir pari.

Sarah Schmelzel er 24 ára frá Phoenix, Arizona.

Þegar Sarah Schmelzel var 10 ára í 4. bekk horfði hún á sögulega 59 hring Anniku Sörenstam á Standard Register PING, en mótið fór fram á heimavelli Schmelzel í Moon Valley Country Club og eftir það varð ekki aftur snúið… hún ætlaði sér að verða jafngóð og Annika.

Schmelzel var í University of S-Karólínu þar sem hún hlaut m.a. All-America Honorable Mention og var árið 2016 valin All-American af Golfweek.

Hún komst í gegnum 18 niðurskurði í 21 móti sem hún tók þátt í á Symetra Tour 2018, sem var 2. árið hennar á þeirri mótaröð.

Hún átti 7 topp-10 árangra á Symetra árið 2018; í síðustu 5 mótum átti hún 4 topp-5 árangra og í lok árs var hún í 13. sæti á peningalista Symetra.

Árið 2018 var hún ekki meðal efstu 10 á peningalista Symetra, en átti þess kost að taka þátt lokaúrtökumóti LPGa.