Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 28. 2019 | 10:00

Nýju stúlkurnar á LPGA 2019: Kristen Gillman (45/58)

Hér verða líkt og á undanförnum árum kynntar þær stúlkur sem hlutu kortin sín á LPGA fyrir 2019 keppnistímabilið. Þetta eru þær sem urðu í 45. sæti eða voru jafnar í 45. sæti á lokaúrtökumóti LPGA og efstu 10 á peningalista 2. deildarinnar þ.e. Symetra Tour.

Í ár voru 48 stúlkur sem komust á LPGA gegnum lokaúrtökumótið og síðan einnig þær 10, sem efstar urðu á peningalista Symetra Tour eða alls 58 stúlkur.

Hér hafa 10 efstu á peningalista Symetra Tour verið kynntar sem og þær sem jafnar voru í 45. sætinu á lokaúrtökumóti LPGA, en það eru þær Karen Chung, frá Bandaríkjunum; P.K. Kongkraphan frá Thaílandi; Louise Strahle frá Svíþjóð og Robyn Choi frá Ástralíu.

Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir tók þátt í lokaúrtökumóti LPGA en varð ekki meðal efstu 45 og náði því ekki að endurnýja kortið sitt og fastan keppnisrétt á LPGA næsta keppnistímabil.

Það voru 6 stúlkur, sem deildu 39. sætinu og hafa þær einnig verið kynntar en það eru: Lee Lopez, Sandra Changkija, Lauren Coughlin og Stephanie Kono frá Bandaríkjunum; Pajaree Anannarukarn frá Thaílandi og Guilia Molinaro frá Ítalíu. Þessar 6 léku allar á samtals 9 yfir pari á lokaúrtökumótinu, hver. Síðan hafa þær sem deildu 36. sætinu verið kynntar en það eru: Suzuka Yamaguchi frá Japan; Louise Ridderström frá Svíþjóð og Sophia Popov frá Þýskalandi, en þær léku á samtals 8 yfir pari. Eins hafa þær 3 verið kynntar sem deildu 33. sætinu og léku á samtals 7 yfir pari en það eru Dori Carter og Lori Beth Adams frá Bandaríkjunum og Laetitia Beck frá Ísrael og sú sem var ein í 32. sætinu og lék á samtals 6 yfir pari, en það er María Fassi, frá Mexíkó.

Þær stúlkur sem deildu 27. sætinu á samtals 5 yfir pari voru Kristy McPherson, Cheyenne Knight, Sara Burnham og Lilia Vu frá Bandaríkjunum og Lily Muni He frá Kína. Síðan deildu 4 23. sæti á samtals 4 yfir pari hver, þ.e. þær Gemma Dryburgh, frá Skotlandi; Jing Yan og Xiyu Lin frá Kína og Lauren Kim frá Bandaríkjunum. Þær hafa allar verið kynntar.

Þrjár stúlkur deildu 20. sætinu, allar á samtals 3 yfir pari en það voru: Maddie McCrary, og Alana Uriell frá Bandaríkjunum og Jenny Haglund frá Svíþjóð.

Þær, sem deildu 15. sætinu, allar á samtals 2 yfir pari, voru: Alison Lee, Clariss Guce og Katie Burnett, frá Bandaríkjunum, hin hollenska Anne Van Dam og Tiffany Chan frá Hong Kong.

Í dag verður byrjað að kynna aðra af tveimur sem deildu 13. sætinu: Kristen Gillman frá Bandaríkjunum. Hin Youngin Chun frá Flórída verður kynnt á morgun.

Kristen Gillman fæddist 1997 og er því 21 árs. Hún er frá Austin í Texas.

Meðal þess sem Gillman hefir afrekað á ungri ævi er að sigra tvívegis á U.S. Women’s Amateur (2014 & 2018).

Gillman var í liði Bandaríkjanna í Palmer Cup 2018 (þar sem hún var með 3-1 árangur) og eins var hún í Curtis Cup liði Bandaríkjanna 2018 (sú eina í sögu mótsins til þess að sigra alla leiki sína 5-0-0).

Heiðursviðurkenningar sem Gillman hafa hlotnast eru m.a. Women’s Golf Coaches Association First Team All-American (hlaut þessa viðurkenningu tvívegis og First Team All-SEC (hlaut þessa viðurkenningu einnig tvívegis).

Hún var SEC nýliði ársins 2017 og hluti af  SEC All-Freshman Team það ár.

Hún tók þátt í Opna bandaríska kvenrisamótinu árin 2015 og komst þá ekki í gegnum niðurskurð en varð T-27 í sama 2018, sem er besti árangur hennar í risamóti til þessa.