Nýju stúlkurnar á LPGA 2019: Jeongeun Lee6 (58/58)
Hér verða líkt og á undanförnum árum kynntar þær stúlkur sem hlutu kortin sín á LPGA fyrir 2019 keppnistímabilið. Þetta eru þær sem urðu í 45. sæti eða voru jafnar í 45. sæti á lokaúrtökumóti LPGA og efstu 10 á peningalista 2. deildarinnar þ.e. Symetra Tour.
Í ár voru 48 stúlkur sem komust á LPGA gegnum lokaúrtökumótið og síðan einnig þær 10, sem efstar urðu á peningalista Symetra Tour eða alls 58 stúlkur.
Hér hafa 10 efstu á peningalista Symetra Tour verið kynntar sem og þær sem jafnar voru í 45. sætinu á lokaúrtökumóti LPGA, en það eru þær Karen Chung, frá Bandaríkjunum; P.K. Kongkraphan frá Thaílandi; Louise Strahle frá Svíþjóð og Robyn Choi frá Ástralíu.
Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir tók þátt í lokaúrtökumóti LPGA en varð ekki meðal efstu 45 og náði því ekki að endurnýja kortið sitt og fastan keppnisrétt á LPGA næsta keppnistímabil.
Það voru 6 stúlkur, sem deildu 39. sætinu og hafa þær einnig verið kynntar en það eru: Lee Lopez, Sandra Changkija, Lauren Coughlin og Stephanie Kono frá Bandaríkjunum; Pajaree Anannarukarn frá Thaílandi og Guilia Molinaro frá Ítalíu. Þessar 6 léku allar á samtals 9 yfir pari á lokaúrtökumótinu, hver. Síðan hafa þær sem deildu 36. sætinu verið kynntar en það eru: Suzuka Yamaguchi frá Japan; Louise Ridderström frá Svíþjóð og Sophia Popov frá Þýskalandi, en þær léku á samtals 8 yfir pari. Eins hafa þær 3 verið kynntar sem deildu 33. sætinu og léku á samtals 7 yfir pari en það eru Dori Carter og Lori Beth Adams frá Bandaríkjunum og Laetitia Beck frá Ísrael og sú sem var ein í 32. sætinu og lék á samtals 6 yfir pari, en það er María Fassi, frá Mexíkó.
Þær stúlkur sem deildu 27. sætinu á samtals 5 yfir pari voru Kristy McPherson, Cheyenne Knight, Sara Burnham og Lilia Vu frá Bandaríkjunum og Lily Muni He frá Kína. Síðan deildu 4 23. sæti á samtals 4 yfir pari hver, þ.e. þær Gemma Dryburgh, frá Skotlandi; Jing Yan og Xiyu Lin frá Kína og Lauren Kim frá Bandaríkjunum. Þær hafa allar verið kynntar.
Þrjár stúlkur deildu 20. sætinu, allar á samtals 3 yfir pari en það voru: Maddie McCrary, og Alana Uriell frá Bandaríkjunum og Jenny Haglund frá Svíþjóð.
Þær, sem deildu 15. sætinu, allar á samtals 2 yfir pari, voru: Alison Lee, Clariss Guce og Katie Burnett, frá Bandaríkjunum, hin hollenska Anne Van Dam og Tiffany Chan frá Hong Kong. Þær hafa allar verið kynntar ásamt Kristen Gillman og Youngin Chun frá frá Bandaríkjunum sem deildu 13. sætinu, allar á samtals 1 yfir pari, hver.
Það voru danska stúlkan Nanna Koertz Madsen og Kim Kaufmann frá Bandaríkjunum, sem deildu 11. sætinu, en báðar léku á samtals 2 undir pari. Becca Huffer varð ein í 10. sæti, en hún lék á samtals 3 undir pari. Allar framangreindar hafa verið kynntar.
Það voru kanadíski kylfingurinn Anne-Catherine Tanguay og bandaríski kylfingurinn Lauren Stephenson, sem deildu 8. sætinu en báðar léku þær á samtals 4 undir pari, á lokaúrtökumótinu, hvor. Í 7. sæti varð Jackie Stoelting, sem lék hringina 6 á samtals 6 undir pari og í 6. sæti varð kanadíska stúlkan Jaclyn Lee, en hún lék á samtals 7 undir pari.
Næst voru þær kynntar sem voru í 2.-5. sæti en það voru Mel Reid, sem hafnaði í 5. sæti á 8 undir pari; Klara Spilková, frá Tékklandi, sem varð í 4. sæti á samtals 11 undir pari; hin bandaríska Sarah Schmelzel sem varð í 3. sæti á lokaúrtökumótinu á samtals 14 undir pari og Jennifer Kupcho, en hún spilaði 6 hringi lokaúrtökumótsins, á samtals 17 undir pari.
Nú á bara eftir að kynna sigurvegara lokaúrtökumótsins en það var Jeongeun Lee frá Suður-Kóreu, en hún lék keppnishringina 6 á 18 undir pari, eða að meðaltali hvern hring á 3 undir pari.
Jeongeun Lee 6 fæddist 28. maí 1996 og er því aðeins 22 ára.
Hún er frá Yongin og hefir spilað á kóreanska LPGA (KLPGA) frá árinu 2015.
Á þeim tíma hefir hún sigrað 7 sinnum á KLPGA, þ.á.m. tvívegis árið 2018 og var nr. 1 á peningalista KLPGA það ár.
Áður en Lee komst á LPGA hafði hún spilað í 6 mótum á bandaríska LPGA og átt tvo topp-10 árangra, báða í risamótum: Hún varð T-6 á Evian Championship 2018 og T-5 á Opna bandríska kvenrisamótinu 2017.
Það er svolítið fyndið að hún er sjötti kylfingurinn frá Kóreu og á KLPGA sem er með nafnið Jeogeun Lee og því er hún oft nefnd Jeongeun Lee 6.
Áhangendaklúbbur þessa unga kylfingis, heima í Kóreu er kallaður „Lucky 6″
Í aðalmyndaglugga: Jeungeun Lee frá S-Kóreu. Mynd: Elsa/Getty
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024