Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 16. 2019 | 10:00

Nýju stúlkurnar á LPGA 2019: Xiyu Lin (35/58)

Hér verða líkt og á undanförnum árum kynntar þær stúlkur sem hlutu kortin sín á LPGA fyrir 2019 keppnistímabilið. Þetta eru þær sem urðu í 45. sæti eða voru jafnar í 45. sæti á lokaúrtökumóti LPGA og efstu 10 á peningalista 2. deildarinnar þ.e. Symetra Tour.

Í ár voru 48 stúlkur sem komust á LPGA gegnum lokaúrtökumótið og síðan einnig þær 10, sem efstar urðu á peningalista Symetra Tour eða alls 58 stúlkur.

Hér hafa 10 efstu á peningalista Symetra Tour verið kynntar sem og þær sem jafnar voru í 45. sætinu á lokaúrtökumóti LPGA, en það eru þær Karen Chung, frá Bandaríkjunum; P.K. Kongkraphan frá Thaílandi; Louise Strahle frá Svíþjóð og Robyn Choi frá Ástralíu.

Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir tók þátt í lokaúrtökumóti LPGA en varð ekki meðal efstu 45 og náði því ekki að endurnýja kortið sitt og fastan keppnisrétt á LPGA næsta keppnistímabil.

Það voru 6 stúlkur, sem deildu 39. sætinu og hafa þær einnig verið kynntar en það eru: Lee Lopez, Sandra Changkija, Lauren Coughlin og Stephanie Kono frá Bandaríkjunum; Pajaree Anannarukarn frá Thaílandi og Guilia Molinaro frá Ítalíu. Þessar 6 léku allar á samtals 9 yfir pari á lokaúrtökumótinu, hver. Síðan hafa þær sem deildu 36. sætinu verið kynntar en það eru: Suzuka Yamaguchi frá Japan; Louise Ridderström frá Svíþjóð og Sophia Popov frá Þýskalandi, en þær léku á samtals 8 yfir pari. Eins hafa þær 3 verið kynntar sem deildu 33. sætinu og léku á samtals 7 yfir pari en það eru Dori Carter ogsLori Beth Adams frá Bandaríkjunum og Laetitia Beck frá Ísrael og sú sem var ein í 32. sætinu og lék á samtals 6 yfir pari, en það er María Fassi, frá Mexíkó.

Þær stúlkur sem deildu 27. sætinu á samtals 5 yfir pari voru Kristy McPherson, Cheyenne Knight, Sara Burnham og Lilia Vu frá Bandaríkjunum og Lily Muni He frá Kína.

Í dag verður haldið áfram að kynna þær 4 sem deildu 23. sæti og léku allar á samtals 4 yfir pari, hver, en þetta eru þær: Gemma Dryburgh, frá Skotlandi; Jing Yan og Xiyu Lin frá Kína og Lauren Kim frá Bandaríkjunum. Lauren Kim og Gemma Dryburgh hafa þegar verið kynnt arog í dag er það Xiyu Lin.

Xiyu Lin (林希妤) fæddist Guangzhou, Kína, 25. febrúar 1996 og er því 22 ára.

Lin er 1.68 m og 65 kg.

Hún byrjaði í golfi 1. ágúst 2004, þá 8 ára.

Hápunktar á áhugamannsferli Lin eru að hún vann silfurmedalíuna á Asian Games 2010. Eins varð hún sem áhugamaður í 9. sæti á Sanya Ladies Open, 2010 á LET.

Lin gerðist atvinnumaður í golfi  2011. Það ár tók hún m.a. þátt í US Womens Open risamótinu og varð í 5. sæti á Sanya Ladies Open 2011.

Lin hóf feril sinn á kínverska LPGA (ens.:  China LPGA Tour, skammst. CLPGA). Hún hefir sigrað 7 sinnum á alþjóðlegum mótum þar af 5 sinnum á CLPGA, þ.e. á

2012 Tian Jing Challenge, Srixon XXIO Ladies Open
2013 Sanya’s Hills Ladies Classic
2014 Sanya’s Hills Ladies Classic og Sanya Ladies Open^
2015 Sanya Ladies Open^

Lin hóf að spila á LET 2013 og hefir sigrað tvívegis á mótaröðinni þ.e. the Sanya Ladies Open in 2014 og 2015, en það eru mót sem LET, CLPGA og Ladies Asian Golf Tour standa sameiginlega að.

Lin hóf að spila á LPGA 2014, en þá var besti árangur hennar T-5 í Blue Bay LPGA mótinu árið 2015.

Lin hefir nokkrum sinnum farið holu í höggi í mótum á LPGA.

Í fyrra sigraði Lin á áströlsku LPGA, þ.e. ALPG mótaröðinni, sem Valdís Þóra „okkar“ hlaut keppnisrétt á nú nýverið. Sigur Lin kom í ALPG Ballarat Icons Pro Am 2018.

Og nú er Lin búin að tryggja sér fullan keppnisrétt á LPGA 2019!!!

Mestu áhrifavaldarnir í golfi eru Shanshan Feng, sem líka er frá Guangzhou og mamma Lin, sem er atvinnumaður í fótbolta.

Áhugamál Lin er Allt sem er blátt, en blátt er uppáhaldslitur Lin! Eins finnst henni gaman að borða góðan mat, hlusta á tónlist, horfa á kvikmyndir og fara í verslunarferðir.