Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 31. 2012 | 20:00

NÝTT: Nýju strákarnir á PGA Tour 2012: nr. 1 – John Huh

Golf 1 fer nú af stað með nýja greinaröð þ.e. kynntir verða strákarnir sem þátt tóku í einu erfiðasta golfmóti allra golfmóta: Q-school PGA, sem fram fór á PGA West, í La Quinta í Kaliforníu 30. nóvember – 5. desember á síðasta ári, 2011. Birgir Leifur okkar Hafþórsson reyndi m.a. fyrir sér, en komst ekki í lokaúrtökumótið að þessu sinni.

John Huh

PGA mót síðastliðinnar helgi, Farmers Insurance Open er hvatinn að því að farið er að kynna nýju strákana, því margir  af nýliðunum voru að standa sig vel á mótinu, m.a. John Huh, sem þegar hefir verið kynntur. Til að sjá kynningu á John Huh smellið hér:  JOHN HUH

Það voru 29 strákar, sem hlutu kortið sitt á PGA Tour að þessu sinni og keppnisrétt á 2012 keppnistímabilinu.  Strákarnir verða kynntir í öfugri röð þ.e. byrjað á þeim sem rétt sluppu inn á röðina og endað á sigurvegara PGA Q-school 2011: Brendon Todd.

Það voru 3 kylfingar sem lentu í botnsætunum, þ.e. deildu 27. sætinu. Það voru John Huh (sjá kynningu hér að ofan á honum), Colt Knost og Nathan Green.  Hinir tveir Knost og Green verða kynntir hér næstu daga og svo hver á fætur öðrum þar til komið er að Brendon Todd.