Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 15. 2013 | 18:00

Obama í sveiflugreiningu hjá Butch Harmon – Myndskeið

Golfgúrúinn frægi Butch Harmon og sonur hans Claude III fljúga til Flórída nú um helgina til þess að vinna með Barack Obama í að bæta sveiflu hans. Kennslan á að fara fram í The Floridian Golf Club í Palm City.

Butch Harmon við kennslu.

Butch Harmon við kennslu.

„Ég hef spilað golf með Ike, Nixon, Ford og 41. forseta Bandaríkjanna Bush,“ sagði Butch Harmon, sem þá var enn staddur í golfskóla sínum í Henderson, Nevada. „Ég hef aldrei spilað við Clinton forseta. En ég hitti hann á skrifstofu hans (Oval Office) (meðan hann (Clinton) var enn í embætti). Þetta (að kenna Obama) verður mjög áhugavert. Ég veit að forsetinn er kænn kylfingur. Ég hlakka til. Þetta ætti að verða gaman.“

Butch Harmon hefir kennt mörgu fyrirfólkinu, m.a. bjó hann í Marokkó í mörg ár í kringum 1970 og var einkakennari Hassan II. Marokkókonungs. Þá eru ótaldar allar golfstjörnurnar sem hann hefir kennt en nefna mætti sem dæmi:  Tiger, Ernie Els, Stewart Cink, Greg Norman, Davis Love III, Fred Couples, Justin Leonard, Nick Watney, Adam Scott, Dustin Johnson, Natalie Gulbis, og Gary Woodland.

Harmon gerði fyrst greiningu á sveiflu Obama Bandaríkjaforseta á fyrri hluta embættistíðar hans.

“Hann er örvhentur kylfingur, ég hef séð sveiflu hans áður á myndskeiði,“ sagði Butch Harmon.  Það verður gaman að fá hann í æfingabúðirnar til þess að sýna honum einstaka hluti golfsveiflu hans og sjá hvernig hann er á vellinum. Hann er eins og við öll. Hann vill bara verða betri í golfi.“

Til þess að sjá myndskeið af sveiflu Obama þar sem Butch Harmon tjáir sig um hvað  betur mætti fara  SMELLIÐ HÉR: