Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 3. 2019 | 18:30

Ólafía Þórunn góð á Bahamas

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR og LPGA tók þátt í mikilvægu styrktarmóti, sem ekki er hluti af LPGA en margir þekktir kylfingar m.a. Lexi Thompson og Sandra Gal tóku þátt í og það á Bahamas.

Ólafía Þórunn átti hring upp á stórglæsileg 6 undir pari, 66 högg!!!

Frábært að sjá hvað góð hvíld getur gert en orkan og leikgleðin virðast komin aftur hjá Ólafíu Þórunni.

Hér fyrir neðan má sjá flott skorkort Ólafíu Þórunnar:

Nú er keppninni á Bahamas lokið. Ólafía Þórunni og hennar ProAm hópur unnu ProAm mótið.

En Ólafía lenti í Final 4 í aðalkeppninni ásamt Lexi Thompson.

Á myndinni er Ólafía á milli Söndru Gal og Lexi Thompson.

Í keppnin voru eins og segir nokkrar mjög sterkar LPGA dömur.

Ágæt 2019 byrjun hjá Ólafíu Þórunni og vonandi að framhald verði á!!!!!