Ólafur Björn meiddur á úlnlið
Ólafur Björn Loftsson, NK, tekur þátt í úrtökumóti fyrir Web.Com mótaröðina, í Brunswick, Georgíu.
Leiknir eru 3 hringir án niðurskurðar og eftir 2 hringi er Ólafur búinn að spila á samtals 11 yfir pari, 151 höggi (74 77).
Ólafur Björn er í 65. sæti og hafa þetta væntanlega verið vonbrigði fyrir hann, en óvanalega hátt skor hans skýrist í ljósi þess að hann er meiddur á úlnlið.
Sjá má stöðuna eftir 2. dag á úrtökumótinu fyrir Web.Com mótaröðina í Brunswick, Georgíu með því að SMELLA HÉR:
Á facebook síðu Ólafs Björns skrifaði hann:
„Spilaði annan hringinn á 77 (+7) höggum í dag. Gríðarlega erfiður dagur en ég var á báðum áttum hvort ég ætti að draga mig úr mótinu. Ég hef verið í smá vandræðum undanfarið með vinstri úlnliðinn minn en hann var afar aumur í dag og átti ég mjög erfitt með að beita honum almennilega í sveiflunni. Ég hitti örfáar flatir í tilætluðum höggafjölda í dag og átti lítinn möguleika á að bjarga deginum. Ég ákvað að halda áfram að berjast í dag en ég ætla að sjá til í fyrramálið hvort ég spili á morgun því ég vil að sjálfsögðu ekki gera illt verra.“
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024