Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 19. 2021 | 07:00

Opna breska 2021: Collin Morikawa sigraði!

Það var hinn 24 ára bandaríski Collin Morikawa, sem sigraði á Opna breska!

Louis Oosthuizen, sem búinn var að vera í forystu mestallt mótið endaði í 4. sæti ásamt Jon Rahm, en  Jordan Spieth landaði 2. sætinu.

Sigurskor Morikawa var 15 undir pari, 265 högg (67 64 68 66) og átti hann heil 2 högg á Spieth.

Morikawa er fæddur 6. febrúar 1997 og er þetta 5. atvinnumannstitill hans (allir á PGA Tour) og 2. risamótstitill, en Morikawa sigraði á PGA Championship í fyrra (2020).

Sigrar Morikawa eru sögulegir því  báða risamótstitla sína vann hann í 1. tilraun, sem hann tekur þátt í viðkomandi risamóti.

M.ö.o: Hann er sá eini sem sigrað hefir PGA Championship í 1. tilraun og Opna breska í 1. tilraun – nafn hans stendur ekki fyrir aftan nöfn eins og Woods, Mickelson, Nicklaus, Hogan, Player eða Palmer…. heldur eitt og sér – engum hefir áður tekist þetta!

Þetta er 2. risatitill Morikawa í aðeins 8 risamótum, sem hann hefir tekið þátt í.

Hann ásamt Gene Sarazen, Bobby Jones, Jack Nicklaus, Seve Ballesteros, Tiger Woods, Rory McIlroy, og Jordan Spieth er hafa sigrað í 2 risamótum fyrir 25 ára aldurinn!

Hann og Tiger eru þeir einu sem sigrað hafa í bæði PGA Championship og Opna breska fyrir 25 ára aldurinn.

Morikawa er 6. kylfingurinn til þess að spila alla sigurhringi sína undir 70 á Opna breska. Öðrum sem það hefir tekist eru: Greg Norman (1993), Nick Price (1994), Tiger (2000), Henrik Stenson (2016) og Jordan Spieth (2017).

Til þess að sjá lokastöðuna á Opna breska SMELLIÐ HÉR: