Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 2. 2019 | 21:00

Opna breska kvenrisamótið 2019: Buhai leiðir enn e. 2. dag

Ashley Buhai frá S-Afríku er enn í forystu á Opna breska kvenrisamótinu í hálfleik.

Samtals er Buhai búin að spila á samtals 12 undir pari, 132 höggum (67 65).

Hún á 3 högg á Hinako Shibuno, sem er í 2. sæti á samtals 9 undir pari, 135 höggum (66 69).

Í 3. sæti er síðan Lizette Salas frá Bandaríkjunum á samtals 8 undir pari, 136 höggum (69 67).

Risamótið fer fram í Woburn, Milton Keynes í Englandi, dagana 1.-4. ágúst 2019.

Sjá má stöðuna á Opna breska kvenrisamótinu með þvi að SMELLA HÉR:

Sjá má hápunkta 2. dags á Opna breska kvenrisamótinu með því að SMELLA HÉR: