Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 31. 2012 | 04:30

PGA: Brian Davis og Louis Oosthuizen efstir á Shell Open þegar leik er frestað vegna myrkurs – hápunktar og högg 2. dags

Það eru meistari Opna breska 2010, Louis Oosthuizen og Bandaríkjamaðurinn Brian Davis sem eru efstir þegar Shell Houston er hálfnað. Báðir eru þeir búnir að spila á samtals -11 undir pari, samtals 133 höggum. Forystan er þó með fyrirvara því ekki tókst að ljúka 2. hring og eiga nokkrir eftir að ljúka leik, þ.á.m. gamla brýnið Jeff Maggert, frá Bandaríkjunum sem eftir á að spila 8 holur og er aðeins 1 höggi á eftir þeim Oosthuizen og Davis og er sem stendur í 3. sæti.

Jeff Maggert

Þeir sem deila 4. sæti eru þeir, sem lokið hafa leik á samtals -9 undir pari og samtals 135  höggum, en það er  hópur 5 kylfinga með m.a. Phil Mickelson innanborðs, sem búinn er að eiga frábæra hringi (65 70).

Til þess að sjá stöðuna eftir 2. dag á Shell Houston smellið HÉR: 

Til þess að sjá hápunkta 2. dags á Shell Houston smellið HÉR: 

Til þess að sjá högg 2. dags á Shell Houston, sem Charl Schwartzel átti, smellið HÉR: