Ragnheiður Jónsdóttir | október. 25. 2020 | 23:59

PGA: Cantlay sigraði á ZOZO

Það var bandaríski kylfingurinn Patrick Cantlay sem vann upp 3 högga forystu sem Justin Thomas hafði fyrir lokahringinn á móti vikunnar á PGA Tour, ZOZO Championship og stóð uppi sem sigurvegari!

Sigurskor Cantlay var 23 undir pari, 265 högg (67 65 68 65).

Í 2. sæti urðu Justin Thomas og Jon Rahm, aðeins 1 höggi á eftir.

Fyrir sigurinn hlaut Cantlay $ 1.440.000 (u.þ.b. 187 milljónir íslenskra króna).

Sjá má lokastöðuna á ZOZO Championship með því að SMELLA HÉR: